Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Heilsu­gæsla höfuð­borg­ar­svæð­isins

Upplýsingar um starf

Starf

Móttökuritari - Heilsugæslan Hvammi

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

70-100%

Starf skráð

11.09.2026

Umsóknarfrestur

21.09.2026

Móttökuritari - Heilsugæslan Hvammi

Við leitum að jákvæðum og drífandi einstaklingi til að koma til liðs við okkur.

Heilsugæslan Hvammi óskar eftir að ráða móttökuritara í fjölbreytt og skemmtilegt starf. Um er að ræða 70-100 % ótímabundið starf og æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Á Heilsugæslunni starfar sérhæft og metnaðarfullt starfsfólk í hvetjandi og áhugaverðu starfsumhverfi þar sem frumkvæði og sjálfstæði fær að njóta sín. Stöðin er staðsett rétt við Smáralindina, með gott aðgengi og stutt í helstu stofnbrautir. Góð samvinna er á milli fagstétta og öflug skemmtinefnd að störfum.

Nánari upplýsingar um starfsemi stöðvarinnar má finna á vef Heilsugæslunnar (www.heilsugaeslan.is).

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Símsvörun, bókanir og móttaka skjólstæðinga

  • Móttaka tímapantana í afgreiðslu

  • Uppgjör í lok dags

  • Almenn upplýsingagjöf um starfsemi stöðvarinnar

  • Ýmis önnur tilfallandi störf

Hæfniskröfur

  • Heilbrigðisritaramenntun og/eða nám sem nýtist í starfi

  • Reynsla af móttökuritarastarfi skilyrði

  • Reynsla af Sögukerfi kostur

  • Framúrskarandi samskiptahæfileikar, rík þjónustulund og jákvætt hugarfar

  • Nákvæm og skipulögð vinnubrögð

  • Metnaður og sjálfstæði í starfi

  • Góð almenn tölvukunnátta

  • Íslenskukunnátta skilyrði

  • Góð almenn enskukunnátta æskileg

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert.

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi fjármálaráðherra og viðkomandi stéttarfélags. Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilsskrá. Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Katli Berg Magnússyni, framkvæmdastjóra mannauðs og nýliðunar Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Tekið er mið af jafnréttis- og mannréttindarstefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið. Umsókn getur gilt í 6 mánuði. HH áskilur sér rétt á að óska eftir hreinu sakavottorði.

Starfshlutfall er 70-100%

Umsóknarfrestur er til og með 21.09.2026

Nánari upplýsingar veitir

Guðný Ásgeirsdóttir

Tölvupóstur: gudny.asgeirsdottir@heilsugaeslan.is

Þjónustuaðili

Heilsu­gæsla höfuð­borg­ar­svæð­isins

Upplýsingar um starf

Starf

Móttökuritari - Heilsugæslan Hvammi

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

70-100%

Starf skráð

11.09.2026

Umsóknarfrestur

21.09.2026