
Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Sérfræðingur í hjúkrun - Dag- og göngudeild Barnaspítala Hringsins
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
06.11.2026
Umsóknarfrestur
18.11.2026
Sérfræðingur í hjúkrun - Dag- og göngudeild Barnaspítala Hringsins
Laust er til umsóknar starf sérfræðings í hjúkrun á dag- og göngudeild Barnaspítala Hringsins. Auglýst er eftir kraftmiklum einstaklingi til að efla öryggi, gæði og framþróun með áherslu á hjúkrun barna sem fara í skurðaðgerðir og/ eða þurfa sérhæfða sárameðferð.
Starf sérfræðings í hjúkrun nær þvert yfir Barnaspítala Hringsins og því leitum við að einstaklingi sem hefur sterka heildarsýn, býr yfir lausnamiðaðri hugsun og er tilbúinn að leggja sitt af mörkum þar sem þörf er á.
Sérfræðingur í hjúkrun er sýnilegur leiðtogi sem veitir sérhæfða hjúkrun, miðlar sérfræðiþekkingu, styður við samstarfsfólk og styrkir starfsemi Barnaspítalans í heild og hjálpar honum þannig að ná markmiðum sínum.
Þetta er einstakt tækifæri fyrir sérfræðing sem hefur brennandi áhuga á klínísku starfi, umbótum, nýsköpun og þróun barnahjúkrunar og vill hafa áhrif á þjónustu við börn sem fara í skurðaðgerðir og/eða þurfa sérhæfða sárameðferð og fjölskyldur þeirra.
Starfshlutfall, sem skiptist á milli dag- og göngudeildar, er 100% og er starfið laust frá 1. janúar 2027 eða eftir samkomulagi
Barnaspítali Hringsins hefur forystu í heilbrigðisþjónustu við börn á Íslandi og fjölskyldur þeirra. Þar er veitt fjölbreytt heilbrigðisþjónusta sem krefst mikillar sérhæfingar og náinnar samvinnu við þjónustuþega.
Helstu verkefni og ábyrgð
Klínísk störf í samræmi við gagnreynda þekkingu á sviði hjúkrunar barna sem gangast undir skurðaðgerðir sem og við sárameðferðir barna
Þróun hjúkrunar og þjónustu, innleiðing nýrra verkferla og eftirfylgni
Ráðgjöf til sjúklinga, fjölskyldna og fagaðila
Leiðsögn, kennsla og fræðsla
Rannsóknir og gæðastörf
Innleiðing og eftirfylgd nýrra verkefna
Taka virkan þátt í að mæta breytilegum þörfum starfseminnar, t.d. með því að leggja öðrum teymum lið
Stuðlar að liðsheild og menningu sálræns öryggis
Starfar í anda þess að sjúkrahúsþjónusta byggir á teymisvinnu
Hæfniskröfur
Meistara- eða doktorspróf í hjúkrun
Íslenskt sérfræðileyfi í hjúkrun
Reynsla af barnahjúkrun og þjónustu við fjölskyldur þeirra
Þekking og reynsla af skurðhjúkrun og/eða sárameðferð
Farsæl reynsla af gæða- og umbótastarfi
Farsæl reynsla af kennslu og fræðslu kostur
Leiðtoga- og samskiptahæfileikar
Hæfni til að starfa í teymi
Sveigjanleiki og vilji til að sinna verkefnum þvert á starfseiningar þegar þörf krefur.
Hæfni til að aðlagast breytilegum verkefnum og styðja við samfellu þjónustu.
Frumkvæði og drifkraftur
Hreint sakavottorð
Mjög góð íslenskukunnátta og færni til að tjá sig í mæltu og rituðu máli
Frekari upplýsingar um starfið
Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Í umsóknarformið skal skrá inn upplýsingar um:
Fyrri störf, menntun og hæfni
Félagsstörf og umsagnaraðila
Nauðsynleg fylgiskjöl:
Vottað afrit af prófskírteinum og starfsleyfum
Ferilskrá þar sem tilgreind er reynsla af kennslu, rannsóknum, gæða- og þróunarverkefnum
Kynningarbréf með rökstuðningi fyrir hæfni og sýn á starfið
Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Ákvörðun um ráðningu í starfið byggist á innsendum gögnum og viðtölum. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem yfir 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Umsækjendur skulu framvísa nýju sakavottorði áður en til ráðningar getur komið, sbr. meginreglur laga um barnavernd sem m.a. koma fram í 2. mgr. 36. gr. laga nr. 80/2002.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Hjúkrunarfræðingur, Hjúkrun, Sérfræðingur í hjúkrun
Tungumálahæfni: Íslenska 5/5
Staðsetning: Hringbraut, 101 Reykjavík
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 18.11.2026
Nánari upplýsingar veitir
Jóhanna Lilja Hjörleifsdóttir
Tölvupóstur: johahjor@landspitali.is

Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Sérfræðingur í hjúkrun - Dag- og göngudeild Barnaspítala Hringsins
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
06.11.2026
Umsóknarfrestur
18.11.2026