Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Háskóli Íslands

Upplýsingar um starf

Starf

Verkefnisstjóri klínískrar kennslu og aðjúnkt við námsbraut í Sjúkraþjálfun við Læknadeild Háskóla Íslands

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

09.11.2026

Umsóknarfrestur

19.11.2026

Verkefnisstjóri klínískrar kennslu og aðjúnkt við námsbraut í Sjúkraþjálfun við Læknadeild Háskóla Íslands

Laust er til umsóknar sameiginlegt starf verkefnisstjóra klínískrar kennslu og staða aðjúnkts við Námsbraut í sjúkraþjálfun við Læknadeild Háskóla Íslands. Um er að ræða 75% starf verkefnastjóra og 25% aðjúnkts stöðu. Viðkomandi kemur til með að starfa náið með námsbrautarstjóra, kennurum og starfsfólki í stoðþjónustu sjúkraþjálfunar, Læknadeildar og Heilbrigðisvísindasviðs.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Skipulag og umsjón klínískrar kennslu sjúkraþjálfunarnema

  • Umsjón og kennsla námskeiðanna _Stjórnun og rekstu_r og Skráning í sjúkraþjálfun

  • Leiðbeining nemenda í BS- og MS-verkefnum

  • Rannsóknir á sviði sjúkraþjálfunar

  • Stjórnun gæðastarfs námsbrautarinnar

  • Dagleg verkefni tengd klínísku námi og kennslu við námsbrautina

Hæfniskröfur

  • Starfsleyfi sem sjúkraþjálfari á Íslandi

  • Meistarapróf í sjúkraþjálfun

  • Reynsla af verkefnastjórnun og kennslu á háskólastigi

  • Góð samstarfshæfni, nákvæmni og rík þjónustulund

  • Góð tölvukunnátta og hæfni í að tileinka sér nýjungar

  • Sjálfstæð og lausnamiðuð vinnubrögð

  • Góð íslensku- og enskukunnátta, bæði í ræðu og riti

Frekari upplýsingar um starfið

Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Eftirfarandi gögn skulu fylgja umsókn:

  • Ferilskrá

  • Kynningarbréf þar sem fjallað er um hvernig umsækjandi uppfyllir þær hæfnikröfur sem settar eru fram í auglýsingunni og hvað hann telur sig geta lagt af mörkum til starfsins

  • Afrit af prófskírteinum

  • Ritaskrá

  • Upplýsingar um umsagnaraðila

Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknafrests.

Við ráðningu í störf í Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun skólans. Vakin er athygli á málstefnu Háskóla Íslands.

Háskóli Íslands hefur frá stofnun verið undirstaða atvinnulífs og framfara í íslensku samfélagi. HÍ er jafnframt framsækinn rannsóknarháskóli og virkur þátttakandi í alþjóðlegu vísindasamstarfi.

Háskóli Íslands er stærsti háskóli landsins og býður upp á hátt í 400 námsleiðir á grunn-, meistara- og doktorsstigi. Um 14.000 nemendur stunda nám við skólann, þar af yfir 2.000 alþjóðlegir nemar.

Við Háskóla Íslands starfa yfir 1.800 manns. Skólinn leggur áherslu á að laða til sín fjölbreyttan hóp starfsfólks og stúdenta í alþjóðlegt fræðasamfélag þar sem akademískt frelsi, fagmennska, jafnrétti, fjölbreytileiki og inngilding eru í öndvegi. 36 stunda vinnuvika hefur verið innleidd í stjórnsýslustörfum skólans.

Nánar um Háskóla Íslands, fræðasvið hans og deildir

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 19.11.2026

Nánari upplýsingar veitir

Atli Ágústsson

Námsbrautarstjóri í sjúkraþjálfun

Tölvupóstur: atli@hi.is

Magnús Ragnar Guðmundsson

deildarstjóri Læknadeildar

Tölvupóstur: magnusrg@hi.is

Þjónustuaðili

Háskóli Íslands

Upplýsingar um starf

Starf

Verkefnisstjóri klínískrar kennslu og aðjúnkt við námsbraut í Sjúkraþjálfun við Læknadeild Háskóla Íslands

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

09.11.2026

Umsóknarfrestur

19.11.2026