Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Austurlands
Upplýsingar um starf
Starf
Virkniþjálfi - Hjúkrunarheimilið Dyngja - Egilsstaðir
Staðsetning
Austurland
Starfshlutfall
80%
Starf skráð
02.11.2026
Umsóknarfrestur
12.11.2026
Virkniþjálfi - Hjúkrunarheimilið Dyngja - Egilsstaðir
Heilbrigðisstofnun Austurlands óskar eftir að ráða virkniþjálfa á hjúkrunarheimilið Dyngju á Egilsstöðum. Starfshlutfall er 80% og er vinnutími sveigjanlegur. Staðan er laus frá 1. desember eða eftir nánara samkomulagi.
Helstu verkefni og ábyrgð
Starfar í samvinnu við deildarstjóra Dyngju og deildarstjóra endurhæfingardeildar. Skipuleggur og sér um daglegt starf í eflingu virkni og hreyfingu. Stuðlar að samskiptum ættingja og sjúklinga og aðstoðar við að viðhalda þeim. Sinnir öðrum störfum í samráði við næsta yfirmann.
Hæfniskröfur
Menntun og reynsla sem nýtist í starfi. Lögð er áhersla á metnað í starfi, skipulögð vinnubrögð, jákvæðni og sveigjanleika. Lipurð og áreiðanleiki í samskiptum eru skilyrði. Íslenskukunnátta áskilin.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og AFL Starfsgreinafélag hafa gert.
Umsóknum um auglýst störf skal skilað rafrænt til HSA . Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSA við ráðningar. Tóbaksnotkun er ekki heimil á vinnutíma innan HSA.HSA starfar á þremur fagsviðum; heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði en alls eru starfsstöðvarnar fjórtán talsins. Áhersla er lögð á samvinnu þvert á byggðarlög. Stofnunin þjónar rúmlega 11.000 íbúum frá Djúpavogi til Bakkafjarðar, auk ferðamanna sem sækja Austurland heim. HSA vill byggja þjónustu sína á mannvirðingu, þekkingu og þverfaglegri samvinnu enda slagorð stofnunarinnar, samvinna um velferð.
Starfshlutfall er 80%
Umsóknarfrestur er til og með 12.11.2026
Nánari upplýsingar veitir
Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Austurlands
Upplýsingar um starf
Starf
Virkniþjálfi - Hjúkrunarheimilið Dyngja - Egilsstaðir
Staðsetning
Austurland
Starfshlutfall
80%
Starf skráð
02.11.2026
Umsóknarfrestur
12.11.2026