Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Heilsu­gæsla höfuð­borg­ar­svæð­isins

Upplýsingar um starf

Starf

Hjúkrunarfræðingur - Heilsugæslan Miðbæ

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

80-100%

Starf skráð

30.09.2026

Umsóknarfrestur

27.10.2026

Hjúkrunarfræðingur - Heilsugæslan Miðbæ

Heilsugæslan Miðbæ leitar að hjúkrunarfræðingi í fjölbreytt og spennandi starfsumhverfi. Um er að ræða 80-100% ótímabundið starf.

Á Heilsugæslunni Miðbæ starfar öflugur hópur fagfólks sem leggur áherslu á samvinnu, fagmennsku og góða þjónustu. Við bjóðum upp á hvetjandi vinnuumhverfi þar sem frumkvæði, sjálfstæði og tækifæri til starfsþróunar fá að njóta sín.

Hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins eru fjölbreytt tækifæri til faglegrar þróunar, meðal annars með starfsþróunarári og sérnámi í heilsugæsluhjúkrun. Lögð er áhersla á einstaklingsmiðaða aðlögun og góðan stuðning við nýja starfsmenn.

Nánari upplýsingar um starfsemi stöðvarinnar má finna á vef Heilsugæslunnar (www.heilsugaeslan.is).

Helstu verkefni og ábyrgð

Opin og bókuð móttaka

Í móttöku sinna hjúkrunarfræðingar fólki á öllum aldri, bráðaerindum, bókuðum tímum og símaráðgjöf ásamt því að svara skilaboðum í gegnum Heilsuveru. Í bókaðri móttöku er tekið á móti erindum s.s. ferðamannaheilsuvernd, sárameðferð, lyfjagjöfum ásamt heilsueflandi móttöku.

Skólahjúkrun

Skólahjúkrunarfræðingur sinnir reglubundnu heilbrigðiseftirliti nemenda og fræðslu. Auk þess sinnir hann öðrum viðfangsefnum sem upp kunna að koma í samstarfi við annað starfsfólk skólans og foreldra eftir þörfum hverju sinni.

Ung- og smábarnavernd

Markmið ung- og smábarnaverndar er að efla heilsu, vellíðan og þroska ungra barna með reglulegum heilsufarsskoðunum ásamt stuðningi og heilbrigðisfræðslu til fjölskyldna þeirra. Áhersla er lögð á stuðning við fjölskylduna. Fylgst er með þroska barna frá fæðingu til skólaaldurs.

Hæfniskröfur

  • Íslenskt hjúkrunarleyfi

  • Reynsla af heilsugæsluhjúkrun kostur

  • Reynsla af bráða- og slysamóttöku er kostur

  • Þekking og áhugi á forvarnar- og heilsueflingarstarfi kostur

  • Sjálfstæði í starfi, skipulagshæfni og öguð vinnubrögð

  • Reynsla og áhugi á teymisvinnu

  • Mikil samskiptahæfni og sveigjanleiki

  • Íslenskukunnátta skilyrði

  • Góð almenn tölvukunnátta

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilsskrá ásamt kynningarbréfi þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar. Leggja skal fram staðfestar upplýsingar um menntun, fyrri störf og reynslu. Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Katli Berg Magnússyni, framkvæmdastjóra mannauðs og nýliðunar Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík. HH áskilur sér rétt að óska eftir hreinu sakavottorði.

Tekið er mið af jafnréttis- og mannréttindastefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.

Starfshlutfall er 80-100%

Umsóknarfrestur er til og með 27.10.2026

Nánari upplýsingar veitir

Sigrún H. Wahlgren Davíðsdóttir

Tölvupóstur: sigrun.h.wahlgren.davidsdottir@heilsugaeslan.is

Sími: 513 5950

Þjónustuaðili

Heilsu­gæsla höfuð­borg­ar­svæð­isins

Upplýsingar um starf

Starf

Hjúkrunarfræðingur - Heilsugæslan Miðbæ

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

80-100%

Starf skráð

30.09.2026

Umsóknarfrestur

27.10.2026