Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Fjársýslan

Upplýsingar um starf

Starf

Sérfræðingur í launum og kjaramálum

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

01.10.2026

Umsóknarfrestur

12.10.2026

Sérfræðingur í launum og kjaramálum

Viltu taka þátt í að þróa skilvirka, örugga og góða þjónustu í launamálum ríkisins?Fjársýslan leitar að öflugum sérfræðingi til starfa á mannauðssviði.

Hjá okkur færðu tækifæri til að vinna að fjölbreyttum og spennandi verkefnum sem tengjast launamálum ríkisins ¿ allt frá móttöku gagna og úrvinnslu þeirra til greiðslu launa ríkisstarfsfólks. Áhersla er lögð á skilvirkni, áreiðanleika, gagnaöryggi og lausnir sem skapa raunverulegt virði fyrir ríkið.

Við leitum að töluglöggum, nákvæmum og skipulögðum einstaklingi sem hefur áhuga á launamálum, kjarasamningum og stöðugum umbótum. Þú munt starfa í fjölbreyttu og faglegu umhverfi með hópi sérfræðinga sem leggur metnað í góða þjónustu, gott samstarf og vönduð vinnubrögð.

Um starfið

Á mannauðssviði Fjársýslunnar starfar öflugur hópur við launavinnslu og keyrslur fyrir stofnanir ríkisins. Sviðið veitir auk þess mannauðsráðgjöf og fræðslu um launa- og kjaramál ásamt því að leita stöðugt leiða við að efla og þróa þjónustuna.

Fjársýslan er þjónustu- og þekkingarstofnun á sviði opinberra fjármála. Við veitum ríkisstofnunum fjölbreytta þjónustu og ráðgjöf á sviði opinberra innkaupa, fjármála og mannauðsmála og vinnum markvisst að því að þróa bætta þjónustu og skapa virði fyrir viðskiptavini.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Launavinnsla fyrir ríkisstofnanir

  • Fræðsla, ráðgjöf og miðlun upplýsinga

  • Greining gagna og upplýsingaúrvinnsla

  • Þróa ferla, verklag og stafrænar lausnir

  • Samskipti og samstarf við ríkisstofnanir

  • Önnur fjölbreytt verkefni sem tengjast starfseminni

Hæfniskröfur

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi

  • Góð þekking á launavinnslu og kjarasamningum

  • Góð þekking á Excel

  • Reynsla af Orra-launakerfi ríkisins er kostur

  • Reynsla af nýtingu gervigreindartóla kostur

  • Rík þjónustulund og góð samskiptahæfni

  • Frumkvæði, skipulagshæfni og nákvæmni

  • Mjög góð greiningarhæfni og lausnamiðuð hugsun

  • Gott vald á íslensku og ensku

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Umsókn þarf að fylgja ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf (hvort tveggja á íslensku) þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda til að gegna starfinu. Öllum umsóknum verður svarað að ráðningu lokinni og við ráðningu í starfið er farið eftir jafnréttisstefnu Fjársýslunnar.

Af hverju Fjársýslan?

Hjá Fjársýslunni færðu tækifæri til að:

  • Vinna að mikilvægum verkefnum sem hafa bein áhrif á þjónustu ríkisins

  • Nýta þekkingu þína og þróast í starfi, t.d. á sviði gervigreindar

  • Taka þátt í stafrænum umbótum og framþróun

  • Vinna með metnaðarfullu og samhentu fagfólki

Nánari upplýsingar um starfsemi Fjársýslunnar má finna á island.is/s/fjarsyslan

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 12.10.2026

Nánari upplýsingar veitir

Kristín Sigrún Guðmundsdóttir

Mannauðsstjóri

Tölvupóstur: kristin.gudmundsdottir@fjs.is

Þjónustuaðili

Fjársýslan

Upplýsingar um starf

Starf

Sérfræðingur í launum og kjaramálum

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

01.10.2026

Umsóknarfrestur

12.10.2026