
Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Íþróttafræðingur í Batasetri geðþjónustu
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
80-100%
Starf skráð
09.10.2026
Umsóknarfrestur
19.10.2026
Íþróttafræðingur í Batasetri geðþjónustu
Laust er til umsóknar starf í þróttafræðings í Batasetri geðþjónustu Landspítala. Markmið starfsins er að stuðla að líkamlegu heilbrigði og virkni skjólstæðinga innan geðþjónustu Landspítala
Leitað er að kraftmiklum íþróttafræðingi með góða samskiptafærni. Viðkomandi mun taka virkan þátt í uppbyggingu á heilsueflandi þjónustu og efla notendamiðaða nálgun í nánu samstarfi við annað starfsfólk Bataseturs og næsta yfirmanns. Íþróttamenntað starfsfólk í geðþjónustu vinnur saman þvert á deildir og teymi innan þjónustunnar.
Batasetur geðþjónustu er staðsett bæði við Hringbraut og á Kleppi. Þar er boðið upp á virkniúrræði og leiðir til að auka almenna vellíðan og lífsgæði fyrir notendur geðþjónustu spítalans. Aukin áhersla er á stuðning við heilbrigðan lífsstíl fyrir notendur á legudeildum. Rík áhersla er lögð á starfsþróun og er meðal annars boðið upp á þjálfun í áhugahvetjandi samtali sem og handleiðslu.
Starfshlutfall er 100% og veitist starfið frá 1. desember 2026 eða eftir nánara samkomulagi. Næsti yfirmaður er forstöðuhjúkrunarfræðingur kjarna 1 í geðþjónustu.
Helstu verkefni og ábyrgð
Styðja og halda utan um virkni einstaklinga í þjónustu
Umsjá og yfirsýn yfir líkamlega uppvinnslu: Mælingar á þoli og styrk einstaklinga í þjónustu
Samskipti, hvatning, leiðbeiningar og víðtækur stuðningur við einstaklinga í þjónustu
Virk þátttaka í þverfaglegu samstarfi
Þátttaka í umbóta-, gæða- og vísindastarfi
Stuðlar að liðsheild og menningu sálræns öryggis
Hæfniskröfur
Háskólamenntun á sviði íþróttafræða
Reynsla af starfi í geðþjónustu Landspítala er kostur
Leiðtogahæfni og frumkvæði
Mjög góð samskiptahæfni, skipulagsfærni og áreiðanleiki
Góð íslensku- og enskukunnátta er skilyrði
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Viska - stéttarfélag hafa gert.
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, íþróttafræðingur, teymisvinna,
Tungumálahæfni: íslenska 4/5, enska 4/5
Staðsetning: Hringbraut, 101 Reykjavík
Starfshlutfall er 80-100%
Umsóknarfrestur er til og með 19.10.2026
Nánari upplýsingar veitir
Halldóra Friðgerður Víðisdóttir
Tölvupóstur: halldfv@landspitali.is

Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Íþróttafræðingur í Batasetri geðþjónustu
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
80-100%
Starf skráð
09.10.2026
Umsóknarfrestur
19.10.2026