
Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Sjúkraliðar og sjúkraliðanemar í starfsnámi - Spennandi störf á smitsjúkdómadeild
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
20-100%
Starf skráð
08.09.2026
Umsóknarfrestur
18.09.2026
Sjúkraliðar og sjúkraliðanemar í starfsnámi - Spennandi störf á smitsjúkdómadeild
Ertu góður liðsmaður og langar þig að starfa þar sem ríkir góður starfsandi og áhersla er á samvinnu, virðingu og jákvætt og hvetjandi starfsumhverfi?
Við sækjumst eftir reynslumiklum sem og nýútskrifuðum sjúkraliðum í okkar góða hóp. Einnig leitum við eftir sjúkraliðanemum í starfsnámi.
Smitsjúkdómadeild Fossvogi er 20 rúma sólarhringsdeild, ætluð sjúklingum með bráð vandamál á sviði lyflækninga. Deildin sérhæfir sig í smitsjúkdómum en sjúklingahópurinn er fjölbreyttur og gefast því góð tækifæri til starfsþróunar og að öðlast fjölþætta reynslu. Á deildinni starfa um 80 einstaklingar í nánu samstarfi við fagfólk í öðrum sérgreinum. Starfsandi á deildinni er sérlega góður. Við tökum vel á móti nýju fólki og veitum einstaklingsmiðaða aðlögun.
Starfshlutfall og vinnufyrirkomulag er samkomulagsatriði og eru störfin laus nú þegar eða eftir samkomulagi.
Helstu verkefni og ábyrgð
Hjúkrun einstaklinga í samvinnu við aðra fagaðila
Þátttaka í fjölskylduhjúkrun
Þátttaka í þverfaglegri teymisvinnu
Hæfniskröfur
Íslenskt starfsleyfi sjúkraliða/vottun um launað starfsnám
Jákvætt viðhorf, frumkvæði og samskiptahæfni
Faglegur metnaður og áhugi á að öðlast færni í hjúkrun sjúklinga með smitsjúkdóma og annarra sem á deildinni dvelja
Sjálfstæði í vinnubrögðum
Hæfni og geta til að vinna í teymi
Íslenskukunnátta
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sjúkraliðafélag Íslands hafa gert.
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi eða vottun um launað starfsnám ef sjúkraliðanemi í starfsnámi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Sjúkraliði, sjúkraliðanemi, hjúkrun
Tungumálahæfni: íslenska 3/5
Staðsetning: Fossvogi, 108 Reykjavík
Starfshlutfall er 20-100%
Umsóknarfrestur er til og með 18.09.2026
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Sjúkraliðar og sjúkraliðanemar í starfsnámi - Spennandi störf á smitsjúkdómadeild
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
20-100%
Starf skráð
08.09.2026
Umsóknarfrestur
18.09.2026