Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Heilsu­gæsla höfuð­borg­ar­svæð­isins

Upplýsingar um starf

Starf

Sálfræðingur fullorðinna - Heilsugæslan Efstaleiti

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

50%

Starf skráð

18.09.2026

Umsóknarfrestur

30.09.2026

Sálfræðingur fullorðinna - Heilsugæslan Efstaleiti

Heilsugæslan Efstaleiti leitar að jákvæðum og metnaðarfullum sálfræðingi í 50% ótímabundið starf.Um er að ræða ábyrgðarmikið og krefjandi starf á spennandi vettvangi, fyrir sálfræðing sem hefur áhuga á að taka þátt í framþróun í geðheilsumálum innan heilsugæslu og vill stuðla að heilbrigði einstaklinga.Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1. nóvember nk. eða eftir nánari samkomulagi.

Á Heilsugæslunni Efstaleiti starfar sérhæft og metnaðarfullt starfsfólk í hvetjandi og skemmtilegu starfsumhverfi þar sem frumkvæði og sjálfstæði fær að njóta sín. Lögð er áhersla á náið samstarf fagstétta og teymisvinnu. Lögð er áhersla á að sálfræðingar HH fái handleiðslu og símenntun í faginu.

Til greina getur komið að ráða tímabundið áhugasaman reynsluminni sálfræðing í ábyrgðarminna starf fáist ekki sálfræðingur með reynslu í starfið.

Nánari upplýsingar um starfsemi stöðvarinnar má finna á vef Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Sálfræðiþjónusta fyrir einstaklinga 18 ára og eldri

  • Greining, mat og meðferð á geðrænum vanda, gagnreynd sálfræðimeðferð og ráðgjöf

  • Einstaklings- og hópmeðferð

  • Námskeiðahald, ráðgjöf og fræðsla

  • Handleiðsla og þjálfun nema í klínískri sálfræði æskileg

  • Virk þátttaka í þverfaglegri teymisvinnu

  • Þátttaka í þróun og uppbyggingu sálfræðiþjónustu í heilsugæslu

  • Samstarf við aðrar heilbrigðisstofnanir s.s. Landspítala og félagsþjónustu

  • Önnur tilfallandi verkefni eftir þörfum

Hæfniskröfur

  • Starfsleyfi útgefið af embætti landlæknis til að starfa sem sálfræðingur er skilyrði

  • 3 ára starfsreynsla af klínísku starfi er æskileg

  • Þekking og reynsla af gagnreyndum aðferðum

  • Faglegur metnaður og áhugi á uppbyggingu sálfræðiþjónustu í heilsugæslu

  • Sjálfstæði, frumkvæði og lausnamiðuð nálgun í starfi

  • Reynsla og áhugi á þverfaglegri teymisvinnu

  • Reynsla af starfi með túlki

  • Góð samskiptahæfni, lipurð og sveigjanleiki í samskiptum

  • Góð íslenskukunnátta skilyrði

  • Góð enskukunnátta æskileg

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi þar sem fram kemur rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Jafnframt skal leggja fram afrit af leyfisbréfi og prófskírteinum ásamt hreinu sakavottorði. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Katli Berg Magnússyni, framkvæmdarstjóra mannauðs, Álfabakka 16, 109 Reykjavík. HH áskilur sér rétt að óska eftir hreinu sakavottorði.

Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Tekið er mið af jafnréttis- og mannréttindastefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.

Starfshlutfall er 50%

Umsóknarfrestur er til og með 30.09.2026

Nánari upplýsingar veitir

Elínborg Bárðardóttir

Tölvupóstur: elinborg.bardardottir@heilsugaeslan.is

Sími: 513-5350

Þjónustuaðili

Heilsu­gæsla höfuð­borg­ar­svæð­isins

Upplýsingar um starf

Starf

Sálfræðingur fullorðinna - Heilsugæslan Efstaleiti

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

50%

Starf skráð

18.09.2026

Umsóknarfrestur

30.09.2026