Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Hjúkrunarfræðingur á brotaendurhæfingardeild Landakoti

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

80-100%

Starf skráð

12.10.2026

Umsóknarfrestur

22.10.2026

Hjúkrunarfræðingur á brotaendurhæfingardeild Landakoti

Við leitum að framsæknum hjúkrunarfræðingi með áhuga á hjúkrun aldraðra til starfa á brotaendurhæfingardeild L1 á Landakoti, sem er staðsett í hjarta Reykjavíkur í fallegu og friðsælu umhverfi.

Meginstarf á deild felst í meðferð og endurhæfingu aldraðra. Markmiðið er að auka hæfni einstaklingsins til að takast á við athafnir daglegs lífs og/ eða auka líkamlega, andlega og félagslega færni.

Á deildinni starfar samhentur þverfaglegur hópur. Góður starfsandi ríkir á deildinni og einkennist af vinnugleði og metnaði. Markvisst er unnið að umbótum og framþróun. Starfið er laust nú þegar eða eftir nánara samkomulagi.

Áhugasömum er velkomið að hafa samband við Kristínu Vilborgu, deildarstjóra.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Veita, skipuleggja og ákveða meðferð á hjúkrunarmeðferð í samráði við sjúklinga og aðstandendur þeirra

  • Stuðningur og ráðgjöf til sjúklinga og aðstandenda

  • Þátttaka í þverfaglegri teymisvinnu

  • Þátttaka í þróun og umbótum í starfsemi deildarinnar

Hæfniskröfur

  • Íslenskt hjúkrunarleyfi

  • Jákvætt viðmót og góðir samskiptahæfileikar

  • Faglegur metnaður, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum

  • Hæfni og geta til að starfa í teymi

  • Áhugi á hjúkrun aldraðra

  • Góð íslenskukunnátta áskilin

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.

Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.

Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.

Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.

Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.

Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Hjúkrunarfræðingur, Hjúkrun, teymisvinna, endurhæfing,

Tungumálahæfni: Íslenska 4/5

Staðsetning: Túngötu, 101 Reykjavík

Starfshlutfall er 80-100%

Umsóknarfrestur er til og með 22.10.2026

Nánari upplýsingar veitir

Kristín Vilborg Þ. Hjaltalín

Tölvupóstur: kristhor@landspitali.is

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Hjúkrunarfræðingur á brotaendurhæfingardeild Landakoti

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

80-100%

Starf skráð

12.10.2026

Umsóknarfrestur

22.10.2026