Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Alþingi

Upplýsingar um starf

Starf

Net- og kerfisstjóri á skrifstofu Alþingis

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

23.10.2026

Umsóknarfrestur

02.11.2026

Net- og kerfisstjóri á skrifstofu Alþingis

Skrifstofa Alþingis leitar að tæknilega öflugum og lausnamiðuðum einstaklingi með góða þekkingu og reynslu af kerfisrekstri, afbragðs öryggisvitund og ríka þjónustulund. Verkefni upplýsingatæknideildar felast meðal annars í að tryggja stöðugan rekstur, hámarksafköst og öryggi tæknilausna auk verkefnastýringar á sviði upplýsingatækni.

Hjá upplýsingatæknideild starfar samhent teymi að fjölbreyttum verkefnum þar sem engir tveir dagar eru eins. Ef þú nýtur þess að finna lausnir, miðla þekkingu og vinna í lifandi starfsumhverfi þá er skrifstofa Alþingis rétti vinnustaðurinn fyrir þig.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Rekstur og umsýsla netþjóna

  • Net- og öryggisstjórnun

  • Öryggisafritun og endurheimt

  • Rekstur og bilanagreining innviða

Hæfniskröfur

  • Menntun sem nýtist í starfi, s.s. kerfisstjórnun, tölvunar- og/eða kerfisfræði eða önnur sambærileg menntun

  • Marktæk reynsla af sambærilegu starfi

  • Marktæk reynsla af rekstri Linux-netþjóna nauðsynleg, einkum Red Hat-umhverfis

  • Skipulagshæfni og sjálfstæð vinnubrögð

  • Frumkvæði og umbótahugarfar

  • Mjög góð samskiptafærni og reynsla af teymisvinnu

  • Góð færni í íslensku og ensku, bæði skrifuðu og töluðu máli

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem forseti Alþingis og Félag starfsmanna Alþingis hafa gert.

Umsækjendur eru beðnir um að sækja um starfið í ráðningarkerfi Orra. Umsókn skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir hæfni til að gegna starfinu. Einnig skal leggja fram staðfestingu á prófgráðum og upplýsingum um umsagnaraðila. Starfið hentar öllum kynjum og áhugasöm eru hvött til að sækja um.

Umsóknir gilda í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út og öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.Gildi skrifstofunnar eru fagmennska, virðing og framsækni. Nánari upplýsingar um starfsemi Alþingis og skrifstofu þingsins er að finna á vef þingsins.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 02.11.2026

Nánari upplýsingar veitir

Þorbjörg Árnadóttir

deildarstjóri upplýsingatæknideildar

Tölvupóstur: thorbjorg@althingi.is

Sími: 563-0500

Þjónustuaðili

Alþingi

Upplýsingar um starf

Starf

Net- og kerfisstjóri á skrifstofu Alþingis

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

23.10.2026

Umsóknarfrestur

02.11.2026