Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Menning­ar-, nýsköp­unar- og háskóla­ráðu­neyti

Upplýsingar um starf

Starf

Þjónustufulltrúi í menningar-, nýsköpunar og háskólaráðuneyti

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

16.10.2026

Umsóknarfrestur

30.10.2026

Þjónustufulltrúi í menningar-, nýsköpunar og háskólaráðuneyti

Menningar- og nýsköpunar- og háskólaráðuneytið óskar eftir þjónustufulltrúa til afleysinga í 18 mánuði.

Þjónustufulltrúi hefur það verkefni að veita starfsmönnum og viðskiptavinum ráðuneytisins aðstoð og stuðning við ýmis skrifstofu- og bókhaldstengd verkefni. Við leitum að glaðværum og þjónustuliprum einstaklingi. Um er að ræða fjölbreytt starf á góðum vinnustað.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Móttaka á vörum og gestum

  • Umsjón með tækjum og búnaði

  • Ferðabókanir og ferðauppgjör

  • Innkaup og birgðahald

  • Bókhald og afstemmingar

  • Þjónusta við samstarfsfólk

  • Aðstoð við skjalastjórnun

  • Skipulag funda og ráðstefna

  • Önnur tilfallandi verkefni

Hæfniskröfur

  • Góð íslensku- og enskukunnátta

  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum og rík þjónustulund

  • Stundvísi og sjálfstæð vinnubrögð

  • Skipulagshæfni og sveigjanleiki

  • Starfsreynsla sem nýtist í starfi

  • Frumkvæði og hæfni til að vinna í teymi

  • Góð tölvufærni

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag starfsmanna stjórnarráðsins hafa gert.

Umsóknum skal fylgja náms- og starfsferilskrá og kynningarbréf á íslensku þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hvernig viðkomandi uppfyllir hæfniskröfur fyrir starfið. Fólk af öllum kynjum er hvatt til að sækja um.

Æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Athugið að um afleysingastarf er að ræða.

Umsóknum skal skilað inn gegnum Starfatorg.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 30.10.2026

Nánari upplýsingar veitir

Snorri Jónsson

mannauðsstjóri

Tölvupóstur: snorri.jonsson@mnh.is

Sími: 5459600

Þjónustuaðili

Menning­ar-, nýsköp­unar- og háskóla­ráðu­neyti

Upplýsingar um starf

Starf

Þjónustufulltrúi í menningar-, nýsköpunar og háskólaráðuneyti

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

16.10.2026

Umsóknarfrestur

30.10.2026