
Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Ráðgjafar/ stuðningsfulltrúar á nýja réttar- og öryggisgeðdeild á Kleppi
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
70-100%
Starf skráð
21.10.2026
Umsóknarfrestur
10.11.2026
Ráðgjafar/ stuðningsfulltrúar á nýja réttar- og öryggisgeðdeild á Kleppi
Viltu taka þátt í að byggja upp nýja geðdeild og móta framtíð réttar- og öryggisgeðþjónustu?
Við leitum að áhugasömum og metnaðarfullum ráðgjöfum/stuðningsfulltrúum sem vilja taka virkan þátt í uppbyggingu nýrrar réttar- og öryggisgeðdeildar á Kleppi. Hér er spennandi tækifæri til að koma að mótun nýrrar deildar frá grunni, hafa áhrif á starfshætti og taka þátt í þróun sérhæfðrar geðheilbrigðisþjónustu.
Um deildina
Um er að ræða nýja 8 rúma legudeild sem mun sinna sérhæfðri meðferð og endurhæfingu einstaklinga með alvarlegan og flókinn geðrænan vanda. Á deildinni verður lögð áhersla á einstaklingsmiðaða og batamiðaða nálgun þar sem meðferð og endurhæfing taka mið af þörfum, styrkleikum og getu hvers og eins. Meginmarkmið þjónustunnar er að styðja einstaklinga til aukins sjálfstæðis, bættra lífsgæða og farsællar endurkomu út í samfélagið.
Starfsemin mun byggja á öflugri þverfaglegri teymisvinnu þar sem ráðgjafar/stuðningsfulltrúar gegna lykilhlutverki í daglegu lífi deildarinnar. Þeir eru í nánum og daglegum samskiptum við sjúklinga, styðja þá í athöfnum daglegs lífs, virkni, félagsfærni og endurhæfingu og taka þátt í að skapa öruggt, uppbyggilegt og styðjandi meðferðarumhverfi. Sérstök áhersla verður lögð á virka þátttöku sjúklinga í eigin meðferð, góð samskipti og markvisst samstarf við aðstandendur.
Miklar og heildrænar umbætur standa nú yfir í réttar- og öryggisgeðþjónustu Landspítala, bæði hvað varðar húsnæði, skipulag og þróun þjónustunnar. Opnun nýrrar deildar er mikilvægur liður í þeirri uppbyggingu. Starfsfólk sem ræðst til starfa fær tækifæri til að taka virkan þátt í að móta faglega sýn, þróa meðferðarumhverfi, innleiða nýja verkferla og byggja upp sterka liðsheild. Áhersla verður lögð á faglega þróun, þekkingarmiðlun og starfsumhverfi sem einkennist af samvinnu, öryggi og metnaði fyrir góðri þjónustu.
Gert er ráð fyrir að nýja deildin hefji starfsemi um miðjan mars 2027. Ráðningar munu hefjast fyrr til að tryggja starfsfólki markvissan undirbúning, fræðslu og þjálfun áður en starfsemin fer af stað.
Við bjóðum upp á fræðslu, stuðning og tækifæri til faglegrar sérhæfingar:
Sérhæfð fræðsla og þjálfun í réttar- og öryggisgeðþjónustu
Skipulögð aðlögun fyrir nýtt starfsfólk - með stuðningi í starfi, fræðslu og öruggri innkomu inn í krefjandi en gefandi starf
Þjálfun fyrir opnun deildar, þar sem allt starfsfólk fær tíma og stuðning til að undirbúa sig vel áður en starfsemi hefst
Raunveruleg tækifæri til að byggja upp sérþekkingu og þróast í starfi innan geðþjónustu Landspítala
Hvort sem þú ert að stíga þín fyrstu skref á þessu sviði eða hefur mikla reynslu - hjá okkur færðu umgjörð til að vaxa.
Betra jafnvægi vinnu og einkalífs
Vinnuvika í fullu starfi er 36 stundir, og getur orðið styttri eftir samsetningu vakta. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta vinnu og einkalíf.
Starfskjör og upplýsingar
Starfshlutfall: 70-100%
Vinnufyrirkomulag: Vaktavinna
Störfin eru laus frá: 2. janúar 2027 eða eftir samkomulagi
Gert er ráð fyrir að deildin hefji formlega starfsemi í mars 2027
Langar þig að taka þátt í að skapa eitthvað nýtt, þróast í starfi og hafa raunveruleg áhrif á líf fólks?
Sæktu um og vertu með frá fyrsta degi.
Helstu verkefni og ábyrgð
Virk þátttaka í hjúkrun og meðferð inniliggjandi sjúklinga
Daglegur stuðningur við sjúklinga í athöfnum daglegs lífs, virkni og endurhæfingu
Þátttaka í einstaklingsmiðaðri og batamiðaðri meðferð í samvinnu við þverfaglegt teymi
Uppbyggileg samskipti, hvatning og stuðningur við félagsfærni og sjálfstæði
Stuðlar að öryggi sjúklinga og starfsfólks með því að framfylgja verklagi og vera virkur þátttakandi í varnarteymi geðþjónustu
Tekur þátt í þróun þjónustu og umbótastarfi á nýrri deild.
Hefur umsjón með ýmsum störfum sem snúa að daglegum rekstri deildar
Stuðlar að góðum starfsanda
Skráning og upplýsingagjöf í samræmi við verklag deildarinnar
Hæfniskröfur
Menntun sem nýtist í starfi, að lágmarki stúdentspróf
Viðbótarmenntun sem nýtist í starfi er kostur
Reynsla af starfi í geðþjónustu er kostur
Áhugi á starfi með fólki með alvarleg geðræn einkenni
Geta til að vinna undir álagi í krefjandi aðstæðum
Góð samstarfshæfni og mjög góð færni í samskiptum
Jákvætt hugarfar, metnaður og áhugi á að starfa í þverfaglegu teymi
Góð almenn tölvukunnátta
Íslenskukunnátta, bæði í mæltu og rituðu máli
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert.
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, ráðgjafi/ stuðningsfulltrúi, starfsmaður, almenn störf, nemi
Tungumálahæfni: íslenska 4/5
Staðsetning: Kleppsgarðar, 104 Reykjavík
Starfshlutfall er 70-100%
Umsóknarfrestur er til og með 10.11.2026
Nánari upplýsingar veitir
Jóhanna Guðmunda Þórisdóttir
Tölvupóstur: johathor@landspitali.is

Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Ráðgjafar/ stuðningsfulltrúar á nýja réttar- og öryggisgeðdeild á Kleppi
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
70-100%
Starf skráð
21.10.2026
Umsóknarfrestur
10.11.2026