
Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Hjúkrunarfræðingur á göngudeild innkirtlasjúkdóma
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
70-100%
Starf skráð
07.10.2026
Umsóknarfrestur
19.10.2026
Hjúkrunarfræðingur á göngudeild innkirtlasjúkdóma
Göngudeild innkirtlasjúkdóma leitar að metnaðarfullum hjúkrunarfræðingi til starfa í öflugu innkirtlateymi með megináherslu á hjúkrun og eftirfylgd einstaklinga með sykursýki.
Um er að ræða fjölbreytt og krefjandi starf þar sem tækifæri gefst til að taka virkan þátt í þróun þjónustu og veita sérhæfða, gagnreynda hjúkrun. Starfið hentar hjúkrunarfræðingi sem býr yfir framúrskarandi samskiptahæfni, sýnir frumkvæði og sjálfstæði í starfi og hefur áhuga á að vinna í þverfaglegu teymi með skjólstæðinginn í öndvegi.
Göngudeildin er staðsett í nýuppgerðu húsnæði á Eiríksstöðum, Eiríksgötu 5. Þar starfar samheldið teymi heilbrigðisstarfsfólks sem leggur áherslu á fagmennsku, nýsköpun og framúrskarandi þjónustu. Unnið er samkvæmt gagnreyndri þekkingu með aukinni áherslu á tæknilausnir og fjarheilbrigðisþjónustu. Nýtt starfsfólk fær vandaða aðlögun og stuðning frá reyndum hjúkrunarfræðingum deildarinnar.
Við bjóðum
Áhugavert og krefjandi starf á sérhæfðri göngudeild
Tækifæri til faglegrar þróunar og símenntunar
Öflugt og styðjandi starfsumhverfi
Vandaða aðlögun undir leiðsögn reyndra samstarfsmanna
Virka þátttöku í þróun og framtíðarsýn þjónustunnar
Þeir sem hafa áhuga á að starfa í framsæknu starfsumhverfi þar sem fagmennska, gæði og vellíðan skjólstæðinga eru í forgrunni eru hvattir til að sækja um.
Starfið er laust nú þegar eða samkvæmt samkomulagi.
Helstu verkefni og ábyrgð
Veita sérhæfða hjúkrun einstaklingum með sykursýki
Sinna eftirliti, ráðgjöf, fræðslu og stuðningi við skjólstæðinga og aðstandendur
Taka virkan þátt í þverfaglegri teymisvinnu
Veita ráðgjöf og stuðning til annarra heilbrigðisstarfsmanna
Taka þátt í þróun þjónustu og gæðastarfi deildarinnar
Önnur verkefni samkvæmt samkomulagi við deildarstjóra
Hæfniskröfur
Gilt íslenskt hjúkrunarleyfi
Áhugi á hjúkrun einstaklinga með sykursýki
Framúrskarandi samskipta- og samstarfshæfni
Jákvætt viðhorf, fagmennska og þjónustulund
Sjálfstæð, skipulögð og nákvæm vinnubrögð
Góð íslenskukunnátta, bæði í ræðu og riti
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Hjúkrunarfræðingur, hjúkrun, teymisvinna
Tungumálahæfni: íslenska 4/5
Staðsetning: Eiríksgata 5, 101 Reykjavík
Starfshlutfall er 70-100%
Umsóknarfrestur er til og með 19.10.2026
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Hjúkrunarfræðingur á göngudeild innkirtlasjúkdóma
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
70-100%
Starf skráð
07.10.2026
Umsóknarfrestur
19.10.2026