
Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Heilbrigðisgagnafræðingur - Lyflækningar krabbameina
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
80-100%
Starf skráð
27.10.2026
Umsóknarfrestur
09.11.2026
Heilbrigðisgagnafræðingur - Lyflækningar krabbameina
Við sækjumst eftir heilbrigðisgagnafræðingi til fjölbreyttra og sérhæfðra starfa með teymi krabbameinslækna og hjúkrunarfræðinga á Brjóstamiðstöð. Starfið felur í sér að þróa og sjá um skráningu samráðsfunda, taka þátt í gæðaskráningu og umsjón með bókunum einstaklinga sem eru að greinast og/ eða eru í krabbameinslyfjameðferð og fleira sem til fellur til að einstaklingar í meðferð upplifi öryggi og gott skipulag. Starfið er unnið í nánu samstarfi við krabbameinslækna og öðru starfsfólki einingarinnar.
Starfshlutfall er 80-100%, unnið er í dagvinnu og er starfið laust frá nú þegar 2026 eða eftir nánara samkomulagi.
Helstu verkefni og ábyrgð
Undirbúningur og skráning samráðsfunda
Umsýsla er varða bókanir í rannsóknir, viðtöl og meðferð þeirra sem eru nýgreind með brjóstakrabbamein
Yfirsýn og eftir atvikum bókanir þeirra sem eru í krabbameinsmeðferð
Þátttaka i teymisvinnu
Upplýsingagjöf og samskipti við sjúklinga, starfsmenn og stofnanir
Vinna að verkefnum tengdum klínískri skráningu
Samvinna og samstarf við aðrar sérgreinar
Ýmis verkefni fyrir sérfræðinga og fagfólk sérgreinarinnar
Hæfniskröfur
Starfsleyfi sem heilbrigðisgagnafræðingur
Öguð, sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
Jákvætt viðmót og góðir samskiptahæfileikar
Gott vald á íslensku og ensku
Góð tölvuþekking og færni í helstu tölvuforritum
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert.
Vinnuvika starfsfólks í fullri dagvinnu er 36 stundir. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, heilbrigðisgagnafræðingur
Tungumálahæfni: Íslenska 4/5, enska 4/5
Staðsetning: Hringbraut, 101 Reykjavík
Starfshlutfall er 80-100%
Umsóknarfrestur er til og með 09.11.2026
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Heilbrigðisgagnafræðingur - Lyflækningar krabbameina
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
80-100%
Starf skráð
27.10.2026
Umsóknarfrestur
09.11.2026