Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Heilbrigð­is­stofnun Suður­lands

Upplýsingar um starf

Starf

Yfirljósmóðir óskast til starfa á Heilbrigðisstofnun Suðurlands (HSU)

Staðsetning

Suðurland

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

08.09.2026

Umsóknarfrestur

21.09.2026

Yfirljósmóðir óskast til starfa á Heilbrigðisstofnun Suðurlands (HSU)

Yfirljósmóðir óskast til starfa á heilbrigðisstofnun Suðurlands

HSU leitar að reyndum og framsæknum leiðtoga í starf yfirljósmóður. Viðkomandi mun fara með faglega forystu í ljósmæðrastörfum á Suðurlandi, móta framtíðarsýn fyrir þjónustuna og tryggja að barnshafandi konur og fjölskyldur þeirra njóti bestu mögulegu umönnunar. Starfið hentar vel þeim sem hafa brennandi áhuga á að þróa og efla ljósmæðraþjónustu og vilja hafa raunveruleg áhrif á heilbrigðisþjónustu í heilu landshéraði.

HSU veitir heilsugæslu-, sjúkrahús- og öldrunarþjónustu ásamt því að annast sjúkraflutninga. Þjónustusvæðið nær frá Þorlákshöfn í vestri til Hafnar í austri.

Hlutverk HSU er að móta, þróa og útfæra heilbrigðisþjónustu í umdæminu og tryggja íbúum Suðurlands og öðrum þjónustuþegum jafnan aðgang að bestu heilbrigðisþjónustu sem völ er á hverju sinni.

Þjónustumarkmið HSU byggja á gildum okkar um fagmennsku, virðingu og samvinnu. Velferð og þarfir þjónustuþega eru okkar leiðarljós.

Helstu verkefni og ábyrgð

Fagleg forysta í ljósmæðrastörfum og þjónusta við skjólstæðinga stofnunarinnar.

Mönnun, stuðningur við starfsþróun ljósmæðra og önnur mannauðstengd mál.

Yfirsýn og samhæfing ljósmæðraþjónustunnar á Suðurlandi, þar með talið mæðraverndar, fæðingaþjónustu, göngudeildarþjónustu og leghálsskimana.

Þátttaka í stefnumótun, markmiðasetningu og árangursmælingum.

Efling kennslu og endurmenntunar, uppbygging sérhæfingar meðal ljósmæðra.

Ábyrgð á gæða- og öryggismálum.

Innleiðing nýjunga í þjónustu og verklagi.

Þátttaka í klínísku starfi.

Náið samstarf og teymisvinna með öðrum fagstéttum.

Hæfniskröfur

Starfsleyfi ljósmóður frá Embætti Landlæknis.

Farsæl stjórnunarreynsla æskileg.

Metnaður og áhugi á þróun ljósmæðraþjónustu.

Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum auk leiðtogahæfileika.

Jákvætt viðhorf og lausnamiðuð hugsun.

Önnur menntun og reynsla sem nýtist í starfi æskileg.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Ljósmæðrafélag Íslands hafa gert.

Krefjandi og gefandi stjórnunarstarf með raunveruleg áhrif á heilbrigðisþjónustu heils landshluta.

Náið og faglegt samstarf við metnaðarfullt teymi ljósmæðra og annarra heilbrigðisstarfsmanna.

Spennandi tækifæri til frekari þróunar og uppbyggingar ljósmæðraþjónustu á Suðurlandi.

Stuðningur við endurmenntun og faglega þróun.

Fjölbreytt og gott mannlíf á Suðurlandi, í göngufæri við náttúruperlur og gott samfélag.

Umsókn þarf að fylgja staðfestar upplýsingar um menntun og fyrri störf, ásamt afriti af starfsleyfi.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 21.09.2026

Nánari upplýsingar veitir

Guðmundur Vignir Sigurðsson

Tölvupóstur: gudmundur.v.sigurdsson@hsu.is

Þjónustuaðili

Heilbrigð­is­stofnun Suður­lands

Upplýsingar um starf

Starf

Yfirljósmóðir óskast til starfa á Heilbrigðisstofnun Suðurlands (HSU)

Staðsetning

Suðurland

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

08.09.2026

Umsóknarfrestur

21.09.2026