Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Skrifstofumaður - Lyflækningar krabbameina

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

80-100%

Starf skráð

27.10.2026

Umsóknarfrestur

09.11.2026

Skrifstofumaður - Lyflækningar krabbameina

Við sækjumst eftir skrifstofumanni til fjölbreyttra og sérhæfðra starfa með teymi krabbameinslækna og hjúkrunarfræðinga á Brjóstamiðstöð.

Starfið felur í sér að þróa og sjá um skráningu samráðsfunda, taka þátt í gæðaskráningu og umsjón með bókunum einstaklinga sem eru að greinast og/ eða eru í krabbameinslyfjameðferð og fleira sem til fellur til að einstaklingar í meðferð upplifi öryggi og gott skipulag. Starfið er unnið í nánu samstarfi við krabbameinslækna og öðru samstarfsfólki Brjóstamiðstöðvar.

Starfshlutfall er 80-100%, unnið er í dagvinnu og er starfið laust nú þegar 2026 eða eftir nánara samkomulagi.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Undirbúningur og skráning samráðsfunda

  • Umsýsla er varða bókanir í rannsóknir, viðtöl og meðferð þeirra sem eru nýgreind með brjóstakrabbamein

  • Yfirsýn og eftir atvikum bókanir þeirra sem eru í krabbameinsmeðferð

  • Þátttaka i teymisvinnu

  • Upplýsingagjöf og samskipti við sjúklinga, starfsmenn og stofnanir

  • Samvinna og samstarf við aðrar sérgreinar

  • Ýmis verkefni fyrir sérfræðinga og fagfólk sérgreinarinnar

Hæfniskröfur

  • Menntun og reynsla sem nýtist í starfi

  • Öguð, sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð

  • Jákvætt viðmót og góðir samskiptahæfileikar

  • Gott vald á íslensku og ensku

  • Góð tölvuþekking og færni í helstu tölvuforritum

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert.

Vinnuvika starfsfólks í fullri dagvinnu er 36 stundir. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.

Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.

Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.

Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.

Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.

Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Skrifstofumaður, skrifstofustörf,

Tungumálahæfni: Íslenska 4/5, enska 4/5

Staðsetning: Hringbraut, 101 Reykjavík

Starfshlutfall er 80-100%

Umsóknarfrestur er til og með 09.11.2026

Nánari upplýsingar veitir

Agnes Smáradóttir

yfirlæknir

Tölvupóstur: agnessma@landspitali.is

Sími: 543-6866

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Skrifstofumaður - Lyflækningar krabbameina

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

80-100%

Starf skráð

27.10.2026

Umsóknarfrestur

09.11.2026