
Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Sjúkraliðar og sjúkraliðanemar á bráðalyflækningadeild A2 Fossvogi
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
50-100%
Starf skráð
28.10.2026
Umsóknarfrestur
30.11.2026
Sjúkraliðar og sjúkraliðanemar á bráðalyflækningadeild A2 Fossvogi
Við óskum eftir öflugum og áhugasömum sjúkraliðum eða sjúkraliðanemum til starfa á bráðalyflækningadeild A2 í Fossvogi.
Deildin er 19 rúma lyflækningadeild ætluð sjúklingum með bráð og langvinn lyflæknisfræðileg vandamál sem þarfnast innlagnar á sjúkrahús og falla undir almennar lyflækningar. Hjúkrunarviðfangsefnin á deildinni eru mjög fjölbreytt.
Á deildinni starfar öflugur hópur í þverfaglegum teymum og mikil tækifæri eru til þróunar í starfi. Hópurinn er samhentur og ríkir góður starfsandi sem einkennist af vinnugleði og metnaði. Á deildinni er einnig öflug skemmtinefnd.
Við sækjumst eftir sjúkraliðum sem búa yfir þekkingu og reynslu sem og nýútskrifuðum sjúkraliðum eða sjúkraliðanemum. Við leggjum metnað í að taka vel á móti nýju samstarfsfólki og veita góða einstaklingshæfða aðlögun.
Starfið er í vaktavinnu og starfshlutfall er samkvæmt samkomulagi. Ráðið er í starfið sem fyrst eða eftir nánara samkomulagi.
Vinnuskylda starfsfólks í fullri vaktavinnu er 36 stundir á viku og getur orðið minni eftir samsetningu vakta. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.
Helstu verkefni og ábyrgð
Hjúkrun einstaklinga í samvinnu við aðra fagaðila
Þátttaka í teymisvinnu
Hæfniskröfur
Íslenskt sjúkraliðaleyfi/ vottun um launað starfsnám
Jákvætt viðhorf, frumkvæði og góðir samskiptahæfileikar
Faglegur metnaður
Íslenskukunnátta
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sjúkraliðafélag Íslands hafa gert.
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi eða vottun um launað starfsnám ef sjúkraliðanemi í starfsnámi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Sjúkraliði, sjúkraliðanemi, hjúkrun, teymisvinna
Tungumálahæfni: Íslenska 3/5
Staðsetning: Fossvogi, 108 Reykjavík
Starfshlutfall er 50-100%
Umsóknarfrestur er til og með 30.11.2026
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Sjúkraliðar og sjúkraliðanemar á bráðalyflækningadeild A2 Fossvogi
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
50-100%
Starf skráð
28.10.2026
Umsóknarfrestur
30.11.2026