
Þjónustuaðili
Landsbókasafn Íslands - Háskólabókasafn
Upplýsingar um starf
Starf
Sérfræðingur
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
15.10.2026
Umsóknarfrestur
28.10.2026
Sérfræðingur
Landsbókasafn Íslands - Háskólabókasafn leitar að öflugum einstaklingi í fjölbreytt starf á Aðfanga- og skráningarsviði í teymi skylduskila. Um er að ræða 100% starf.
Skylduskil hafa það hlutverk að safna íslenskri útgáfu, hvort sem er á prenti eða á stafrænu/rafrænu formi, t.d. hljóð- og rafbókum, tímaritum og dægurprenti. Skylduskil sjá til þess að útgáfan skili sér til Landsbókasafns Íslands - Háskólabókasafns, sé skráð í viðeigandi kerfi og varðveitt til frambúðar á safninu.
Starfið felur í sér umsýslu með skilaskyldu efni, innheimtu þess, móttöku og frágang. Að auki felur starfið í sér samskipti við útgefendur og aðra hagsmunaaðila.
Helstu verkefni og ábyrgð
Innheimta, móttaka og frágangur skilaskylds efnis
Skráningarvinna í bókasafnskerfinu Gegni og varðveislusafninu Rafhlöðunni
Samskipti við útgefendur og aðra hagsmunaaðila
Vefsöfnun
Hæfniskröfur
Háskólapróf sem nýtist í starfi, t.d. í bókasafns- og upplýsingafræði
Skipulagshæfileikar og mikil samskiptafærni
Sjálfstæði, frumkvæði og skipulögð vinnubrögð
Mjög góð tölvufærni
Þekking á bókasafnskerfinu Ölmu (Gegni) og bókfræðigögnum er kostur
Góð kunnátta í íslensku og ensku
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Umsókn skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningi fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Umsóknarfrestur er til og með 28. október. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Við ráðningar er tekið mið af jafnréttisáætlun safnsins. Landsbókasafn Íslands - Háskólabókasafn áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum.
Landsbókasafn Íslands - Háskólabókasafn | Þjóðarbókhlöðunni | s. 525-5600 | www.landsbokasafn.is
Þekkingarveita í allra þágu
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 28.10.2026
Nánari upplýsingar veitir
Hallfríður Hr Kristjánsdóttir
Sviðsstjóri Aðfanga- og skráningarsviðs
Tölvupóstur: hallfridur.h.kristjansdottir@landsbokasafn.is
Sími: 5255600

Þjónustuaðili
Landsbókasafn Íslands - Háskólabókasafn
Upplýsingar um starf
Starf
Sérfræðingur
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
15.10.2026
Umsóknarfrestur
28.10.2026