
Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Sótthreinsitæknir eða sérhæfður starfsmaður í skol á skurðstofu Hringbraut
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
80-100%
Starf skráð
21.08.2026
Umsóknarfrestur
31.08.2026
Sótthreinsitæknir eða sérhæfður starfsmaður í skol á skurðstofu Hringbraut
Við óskum eftir sótthreinsitækni eða sérhæfðum starfsmanni til starfa á skurðstofur Landspítala við Hringbraut. Vinnufyrirkomulag er dagvaktir og kvöldvaktir auk bakvakta um helgar. Starfshlutall er 80-100% og er starfið laust frá 1. október 2026 eða eftir samkomulagi.
Á skurðstofum Landspítala við Hringbraut eru 11 skurðstofur sem þjóna 7 sérgreinum og árlega eru framkvæmdar þar um 10 þúsund aðgerðir. Á deildinni starfa um 90 einstaklingar; hjúkrunarfræðingar, sjúkraliðar, sótthreinsitæknar, skrifstofufólk og sérhæft starfsfólk við fjölbreytt og krefjandi verkefni, sem unnin eru í nánu samstarfi við fagfólk í öðrum sérgreinum. Gagnreynd þekking, viðurkenndir verkferlar, öryggi sjúklinga og teymisvinna eru höfð í fyrirrúmi á báðum starfseiningum. Í boði er einstaklings aðlöguð þjálfun eftir þörfum hvers og eins á skemmtilegum vinnustað.
Vinnuvika starfsfólks í fullri dagvinnu er 36 stundir. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.
Helstu verkefni og ábyrgð
Þrif og umhirða verkfæra eftir skurðaðgerðir, ýmist á hreinu eða óhreinu skoli
Þrif á svæfingavélum og verkfærum eftir svæfingar
Samskipti við dauðhreinsunardeild á Tunguhálsi
Frágangur á vörum, líni og fleiri tilfallandi verkefni
Hæfniskröfur
Menntun sem sótthreinsitæknir og/eða önnur menntun sem nýtist í starfi
Góð íslenskukunnátta, bæði í mæltu og rituðu máli
Áreiðanleiki
Góð samskiptahæfni og hæfni í teymisvinnu
Skipulagni og sjálfstæði í vinnubrögðum
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert.
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá auk kynningarbréfs. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, sótthreinsitæknir, sérhæfður starfsmaður
Tungumálahæfni: íslenska 4/5
Staðsetning: Hringbraut, 101 Reykjavík
Starfshlutfall er 80-100%
Umsóknarfrestur er til og með 31.08.2026
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Sótthreinsitæknir eða sérhæfður starfsmaður í skol á skurðstofu Hringbraut
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
80-100%
Starf skráð
21.08.2026
Umsóknarfrestur
31.08.2026