
Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Viltu vera á skrá? Lyfjatæknir
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
50-100%
Starf skráð
28.08.2026
Umsóknarfrestur
08.01.2027
Viltu vera á skrá? Lyfjatæknir
Veitt er markviss og einstaklingshæfð aðlögun með reyndum fagaðilum.
Lyfjatæknar gegna mikilvægu hlutverki í lyfjaþjónustu Landspítala og verkefnin eru fjölbreytt og í sífelldri þróun.
Landspítali er miðstöð þekkingar, þróunar og þverfaglegrar samvinnu. Hér starfar fjölbreyttur hópur fólks sem leggur metnað í fagmennsku og stöðugar umbætur. Við vinnum saman að því að veita góða og örugga heilbrigðisþjónustu með sjúklinginn í öndvegi. Hér fær fólk tækifæri til að vaxa og þróast í starfi. Við viljum vera einn af bestu vinnustöðum landsins, með góðum starfsskilyrðum og samkeppnishæfum kjörum.
Í þessum starfaflokki er eingöngu ráðið í tímabundnar stöður s.s.
Störf við verkefni sem standa í tvo mánuði eða skemur
Störf við afleysingar sem ekki er ætlað að standa lengur en 12 mánuði samfellt
Öll ótímabundin störf eru auglýst á Starfatorgi Landspítala og sækja þarf um þau sérstaklega. Við hvetjum þig að skoða auglýst störf hjá okkur.
Umsóknum þessum verður ekki svarað sérstaklega, en stjórnendur hafa samband við þá umsækjendur sem þeir hafa hug á að bjóða starf. Að loknum umsóknarfresti verður birt ný safnauglýsing. Ef þú vilt vera áfram á skrá er þér velkomið að leggja inn nýja umsókn.
Helstu verkefni og ábyrgð
Lyfjatæknipróf
Jákvætt viðmót og liðsmaður
Skipulögð vinnubrögð
Gæðahugsun
Góð tölvukunnátta
Hæfniskröfur
Birgðastýring lyfja á lyfjaherbergjum á deildum Landspítala
Vörumóttaka og frágangur lyfja
Afgreiðsla pantana á deild og ráðgjöf til deilda
Þátttaka í þróun lyfjaþjónustu á klínískum deildum
Fylgni við gæðakerfi og þátttaka í þróun gæðavinnu
Önnur tilfallandi verkefni
Íslenskukunnátta
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Upphafsdagur starfa sem og starfshlutfall er samkomulag.
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 eistaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Lyfjatæknir
Tungumálahæfni: íslenska 4/5
Staðsetning: Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík
Starfshlutfall er 50-100%
Umsóknarfrestur er til og með 08.01.2027
Nánari upplýsingar veitir
Arnþrúður Jónsdóttir
Tölvupóstur: arnthruj@landspitali.is

Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Viltu vera á skrá? Lyfjatæknir
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
50-100%
Starf skráð
28.08.2026
Umsóknarfrestur
08.01.2027