Þjónustuaðili
Sjúkrahúsið á Akureyri
Upplýsingar um starf
Starf
Yfirlæknir öldrunarlækninga við Sjúkrahúsið á Akureyri
Staðsetning
Norðurland eystra
Starfshlutfall
-100%
Starf skráð
30.07.2026
Umsóknarfrestur
21.08.2026
Yfirlæknir öldrunarlækninga við Sjúkrahúsið á Akureyri
Sjúkrahúsið á Akureyri (SAk) óskar eftir að ráða yfirlækni öldrunarlækninga. Einnig kemur til greina að ráða inn yfirlækni með áhuga og reynslu af öldrunarlækningum, en aðra sérfræðimenntun eins og t.d. í heimilislækningum, lyflækningum og taugalækningum.
Um er að ræða 100% stöðu, sem er laus frá 1. nóvember eða eftir nánara samkomulagi.
Helstu verkefni og ábyrgð
Í starfinu felst dagvinna við öldrunarlækningar á sjúkrahúsinu, bæði á legudeild og á göngudeildum, auk vaktþjónustu á sjúkrahúsinu og hjúkrunarheimilum Heilsuverndar á Akureyri.
Ábyrgð á faglegri þróun sérgreinarinnar í samráði við þjónustustjóra og framkvæmdarstjórn SAk og leiða þróun öldrunarlækninga við sjúkrahúsið.
Ábyrgð í gæða- og verklagsstarfi, stefnumótun og framtíðarsýn sérgreinarinnar í samráði við þjónustustjóra og framkvæmdastjórn SAk.
Þátttaka í kennslu heilbrigðisstétta, þjálfun aðstoðar- og deildarlækna auk tækifæra til rannsóknarvinnu
Hæfniskröfur
Fullgilt íslenskt lækningaleyfi og fullgild sérfræðings réttindi í öldrunarlækningum eða annarri sérgrein læknisfræði sem nýtist í starfi.
Reynsla af stjórnunarstörfum er kostur
Færni til að sýna frumkvæði og geta unnið sjálfstætt á skipulagðan hátt
Leiðtogahæfni og góð hæfni í mannlegum samskiptum ásamt færni til að vinna í teymi
Færni í miðlun upplýsinga og gott vald á íslensku og ensku í töluðu og rituðu máli.
Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu
Hreint sakavottorð
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Læknafélag Íslands hafa gert.
Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsóknum skulu fylgja ítarlegar upplýsingar um nám og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi, ef við á. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Sjúkrahússins á Akureyri við ráðningar í störf á sjúkrahúsinu. Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum. Öllum umsóknum verður svarað.
Sjúkrahúsið á Akureyri veitir alþjóðlega DNV-GL vottaða heilbrigðisþjónustu með ISO vottuðu gæðastjórnunarkerfi þar sem áhersla er á virka þátttöku allra starfsmanna til að uppfylla þær gæðakröfur sem gerðar eru í alþjóðlegum staðli sem sjúkrahúsið er vottað eftir.
Samkvæmt mannauðsstefnu Sjúkrahússins á Akureyri er lögð áhersla á að ráða til starfa og halda í hæfileikaríka einstaklinga. Við val á starfsfólki er menntun, reynsla, færni og hæfni höfð að leiðarljósi. Mannauðsstefnan er leiðarljós stjórnenda og starfsfólks sem gerir sjúkrahúsið framsækinn og eftirsóknarverðan vinnustað, en hún byggir á grunngildum sjúkrahússins sem eru: ÖRYGGI, SAMVINNA og FRAMSÆKNI.
Starfshlutfall er -100%
Umsóknarfrestur er til og með 21.08.2026
Nánari upplýsingar veitir
Þjónustuaðili
Sjúkrahúsið á Akureyri
Upplýsingar um starf
Starf
Yfirlæknir öldrunarlækninga við Sjúkrahúsið á Akureyri
Staðsetning
Norðurland eystra
Starfshlutfall
-100%
Starf skráð
30.07.2026
Umsóknarfrestur
21.08.2026