Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Forstöðuhjúkrunarfræðingur legudeilda á bráða-, lyflækninga og endurhæfingarþjónustu

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

21.09.2026

Umsóknarfrestur

01.10.2026

Forstöðuhjúkrunarfræðingur legudeilda á bráða-, lyflækninga og endurhæfingarþjónustu

Landspítali auglýsir laust til umsóknar starf forstöðuhjúkrunarfræðings legudeilda. Forstöðuhjúkrunarfræðingur starfar innan bráða-, lyflækninga- og endurhæfingarþjónustu og leiðir hjúkrunarþjónustu legudeilda og tengda starfsemi.

Innan lyflækningaþjónustu bráða-, lyflækninga- og endurhæfingaþjónustu eru 18-20 rúma legudeildir, tvær almennar lyflækningardeildir auk sérgreina smitsjúkdóma, lungna, tauga, meltingar, nýrna og bráða öldrunar.

Hlutverk forstöðuhjúkrunarfræðings er að þróa þjónustu við sjúklinga innan legudeilda þjónustunnar og vinna að samhæfingu við aðra starfsemi spítalans í samræmi við stefnu og starfsáætlun Landspítala.Forstöðuhjúkrunarfræðingur heyrir undir framkvæmdastjóra og er hluti af sviðsstjórn sem ber ábyrgð á stefnumótun og rekstri.

Forstöðuhjúkrunarfræðingur leiðir ásamt forstöðulækni teymi framlínustjórnenda, þ.e. yfirlækna og deildarstjóra, sem hafa það sameiginlega verkefni að samhæfa, efla og þróa þá þjónustu sem veitt er á öruggan, faglegan og hagkvæman hátt. Forstöðuhjúkrunarfræðingur ber ríkar og gagnkvæmar skyldur til samvinnu, samráðs og uppbyggingar teymisvinnu.

Leitað er að kraftmiklum leiðtoga, með klínískan bakgrunn, sem hefur brennandi áhuga á að byggja upp sterka liðsheild og framfylgja stefnu, markmiðasetningu og framtíðarsýn spítalans.

Um er að ræða 100% starf. Auk stjórnunarhlutverks er gert ráð fyrir þátttöku í klínísku starfi í samráði við framkvæmdastjóra.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Fagleg ábyrgð á uppbyggingu, skipulagi og þróun hjúkrunar í samstarfi við framkvæmdastjóra hjúkrunar, deildarstjóra hjúkrunar og framkvæmdastjóra þjónustunnar

  • Forysta um þjónustu við sjúklinga

  • Samhæfing þjónustu og flæðis þvert á spítalann

  • Efling kennslu, mennta- og vísindastarfs

  • Forysta um uppbyggingu öryggismenningar, gæða- og umbótastarfs og árangursvísa

  • Uppbygging mannauðs og liðsheildar, ásamt ábyrgð á starfsmannamálum

  • Ábyrgð á fjármálum og rekstri þjónustunnar í samræmi við fjárveitingar auk þátttöku í gerð fjárhagsáætlunar

  • Stefnumótun, markmiðasetning, áætlanagerð og eftirfylgni

  • Þátttaka í þróun og nýsköpun

  • Samhæfing faglegra verkefna innan sviðs og í samvinnu við önnur svið

  • Klínísk störf í samræmi við menntun og sérsvið

Hæfniskröfur

  • Háskólamenntun í hjúkrunarfræði og íslenskt hjúkrunarleyfi er skilyrði

  • Framhaldsmenntun í hjúkrunarfræði og/eða önnur framhaldsmenntun á háskólastigi sem nýtist í starfi er kostur

  • Klínískur bakgrunnur er skilyrði

  • Reynsla af stjórnunarstörfum er skilyrði

  • Þekking á gæða- og öryggismálum í heilbrigðisþjónustu

  • Reynsla af því að leiða umbótastarf, teymisvinnu og breytingastjórnun í heilbrigðisþjónustu

  • Framúrskarandi leiðtoga- og samskiptahæfileikar

  • Skipulögð, vönduð og öguð vinnubrögð

  • Frumkvæði, drifkraftur og stefnumótandi hugsun

  • Mikil hæfni í tjáningu í ræðu og riti, á íslensku og ensku

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.

Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum.

Um er að ræða ótímabundna ráðningu í samræmi 41. gr. laga um opinbera starfsmenn (nr. 70/1996), að loknum reynslutíma. Æskilegt að umsækjandi geti hafið störf sem fyrst.

Umsækjendur eru beðnir að skila ítarlegri náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi, er innihalda framtíðarsýn umsækjanda og rökstuðning fyrir hæfni til að gegna stöðunni, auk afrita af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem yfir 6700 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta.

Framtíðarsýn Landspítala er að:

  • Veita framúrskarandi heilbrigðisþjónustu í fjölbreyttu og sístækkandi samfélagi og laga sig að breytilegum þörfum sjúklinga og aðstandenda þeirra.

  • Vera miðstöð nýsköpunar, vísinda og menntunar á sviði heilbrigðisþjónustu og þróa sífellt nýjar lausnir til að mæta áskorunum samtímans.

  • Vera eftirsóknarverður vinnustaður sem laðar til sín og heldur í hæft starfsfólk á öllum starfssviðum spítalans.

  • Hafa aðbúnað, fjármögnun og stuðning til að geta sinnt hlutverki sínu með sóma.

Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, stjórnunarstarf, forstöðumaður, hjúkrunarfræðingur

Tungumálahæfni: Íslenska 5/5, enska 5/5

Staðsetning: Skaftahlíð 24, 105 Reykavík

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 01.10.2026

Nánari upplýsingar veitir

Rafn Benediktsson

Tölvupóstur: rafnbe@landspitali.is

Sími: 824-5929

Sigríður Edda Hafberg

Tölvupóstur: shafberg@landspitali.is

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Forstöðuhjúkrunarfræðingur legudeilda á bráða-, lyflækninga og endurhæfingarþjónustu

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

21.09.2026

Umsóknarfrestur

01.10.2026