Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Umhverf­is-, orku- og lofts­lags­ráðu­neytið

Upplýsingar um starf

Starf

Sérfræðingur á sviði náttúruvár með áherslu á ofanflóð og jarðvá

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

13.10.2026

Umsóknarfrestur

23.10.2026

Sérfræðingur á sviði náttúruvár með áherslu á ofanflóð og jarðvá

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið leitar að sérfræðingi með mikinn áhuga á að vinna að málefnum náttúruvár í hópi sérfræðinga ráðuneytisins og í nánu samstarfi við hlutaðeigandi stofnanir. Um er að ræða stöðu sérfræðings á sviði náttúruvár með áherslu á ofanflóð og jarðvá sem kemur til með að vinna að þeim málaflokki í æðstu stjórnsýslu landsins.

Starfið felur í sér krefjandi og metnaðarfull verkefni sem snúa að málefnum náttúruvár, vörnum gegn ofanflóðum og jarðvá og samþættingu við skipulagsmál sem unnið er að í samstarfi við hag- og fagaðila og eftir stefnu ríkisstjórnar og áherslum ráðherra. Viðkomandi kemur til með að leiða verkefni og taka þátt í stefnumótun á sviði náttúruvár.

Staðan er á skrifstofu náttúru og minjaverndar sem fer m.a. með málefni hættumats vegna ofanflóða, eldgosa og jarðskjálfta og byggingu varna vegna náttúruvár m.a. í nánu samstarfi við Ofanflóðanefnd og Veðurstofu Íslands. Verkefnin snúa að því að halda utan um stefnumótun sem varðar náttúruvá. Auk þess sinnir skrifstofan málefnum náttúruverndar, landgræðslu og skógræktar og minjaverndar.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Stefnumótun og eftirfylgni hættumats og áhættumats vegna náttúruvár með áherslu á ofanflóð, eldgos og jarðskjálfta.

  • Þátttaka í verkefnum sem snúa að samspili náttúruvár og skipulagsáætlana.

  • Stefnumótun og eftirfylgni verkefna sem tengjast náttúruvá.

  • Samstarf við önnur ráðuneyti og stofnanir

Hæfniskröfur

  • Framhaldsmenntun á háskólastigi sem nýtist í starfi.

  • Reynsla á sviði áhættu- eða hættumats er kostur.

  • Reynsla á sviði opinberrar stjórnsýslu er kostur

  • Þekking á sviði náttúruvár er kostur.

  • Haldgóð reynsla af verkefnisstjórnun.

  • Reynsla af stefnumótun og eftirfylgni.

  • Góð stafræn færni og lausnamiðuð hugsun.

  • Frumkvæði, skipulögð vinnubrögð og sjálfstæði í starfi.

  • Mjög góð samskipta- og samvinnufærni og geta til að vinna í teymi.

  • Mjög góð færni í íslensku, bæði í töluðu og rituðu máli.

  • Mjög góð kunnátta í ensku.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um.

Með umsókn skal fylgja starfsferilskrá, prófskírteini og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðum umsóknar og hvernig umsækjandi uppfyllir hæfniskröfur.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 23.10.2026

Nánari upplýsingar veitir

Björn Helgi Barkarson

Skrifstofustjóri

Tölvupóstur: bjorn.helgi.barkarson@urn.is

Jóhanna Ella Jónsdóttir

Mannauðsstjóri

Tölvupóstur: johanna.jonsdottir@urn.is

Þjónustuaðili

Umhverf­is-, orku- og lofts­lags­ráðu­neytið

Upplýsingar um starf

Starf

Sérfræðingur á sviði náttúruvár með áherslu á ofanflóð og jarðvá

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

13.10.2026

Umsóknarfrestur

23.10.2026