
Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Sjúkraþjálfari í Fossvogi
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
80-100%
Starf skráð
03.09.2026
Umsóknarfrestur
14.09.2026
Sjúkraþjálfari í Fossvogi
Sjúkraþjálfun Landspítala í Fossvogi óskar eftir tveimur sjúkraþjálfurum í fullt starf. Starfið snýr að skjólstæðingum á legudeildum.
Hér er kjörið tækifæri til að dýpka þekkingu og verða hluti af skemmtilegri og öflugri liðsheild. Sjúklingahópurinn er fjölbreyttur og gefst því gott tækifæri til að öðlast fjölþætta reynslu. Sjúkraþjálfun í Fossvogi sinnir bráðadeildum og göngudeildum. Möguleiki er að sinna gæsluvöktum á kvöldin og um helgar.
Sjúkraþjálfun Landspítala leggur áherslu á fagþróun, rannsóknir, kennslu og þverfaglegt samstarf.
Vinnuvika starfsfólks í fullri dagvinnu er 36 stundir sem styður við betra jafnvægi milli vinnu og einkalífs.
Helstu verkefni og ábyrgð
Skoðun, mat og meðferð sjúklinga
Skráning í sjúkraskrárkerfi
Fræðsla til sjúklinga og aðstandenda
Þátttaka í þverfaglegu teymi
Virk þátttaka í faglegri þróun
Hæfniskröfur
Íslenskt starfsleyfi sem sjúkraþjálfari
Faglegur metnaður og ábyrgð
Reynsla af starfi með bráðveikum
Góð samskiptahæfni og jákvætt viðmót
Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
Góð hæfni í íslensku
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag sjúkraþjálfara hafa gert.
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Sjúkraþjálfari
Tungumálahæfni: íslenska 3/5
Staðsetning: Fossvogur, 108 Reykjavík
Starfshlutfall er 80-100%
Umsóknarfrestur er til og með 14.09.2026
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Sjúkraþjálfari í Fossvogi
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
80-100%
Starf skráð
03.09.2026
Umsóknarfrestur
14.09.2026