
Þjónustuaðili
Háskóli Íslands
Upplýsingar um starf
Starf
Gagnasérfræðingur við þróun vöruhúss gagna
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
12.10.2026
Umsóknarfrestur
22.10.2026
Gagnasérfræðingur við þróun vöruhúss gagna
Laust er til umsóknar fullt starf gagnasérfræðings hjá upplýsingatæknisviði Háskóla Íslands. Starfið tengist þróun vöruhúss gagna fyrir Háskóla Íslands sem og aðra íslenska háskóla.
Helstu verkefni og ábyrgð
Hönnun og smíði gagnahúss sem felst í uppsetningu á gagnaskipan (Star Schema, Data vault 2.0) sem hentar þörfum rekstursins
Smíði og þróun ETL/ELT ferla til að sækja, hreinsa og hlaða gögnum úr fjölbreyttum upprunakerfum (t.d. ERP, CRM, vefkerfi)
Skýrslugerð sem felst m.a. í hönnun á mælaborðum (dashboards) sem veita stjórnendum og starfsmönnum innsýn í reksturinn á rauntíma
Gæðaeftirlit sem felst m.a. í að tryggja að gögn séu rétt og að öryggi þeirra sé í fyrirrúmi
Ráðgjöf og aðstoð við deildir við að skilgreina lykilmælikvarða (KPIs) og koma þeim í myndrænt form
Hæfniskröfur
Grunngráða í tölvunarfræði eða skyldum greinum
Starfsreynsla af hönnun og þróun gagnavöruhúsa
Reynsla af vinnu við gagnalíkön (t.d. Star Schema, Data vault 2.0) eða sambærileg reynsla af uppbyggingu gagnainnviða
Reynsla af vinnu í PowerBI
Reynsla af vinnu við Postgresql eða sambærileg kerfi
Reynsla af vinnu við forritun meðal annars í Python eða sambærilegu forritunarmáli
Þjónustulund og samskiptahæfni
Góð íslensku- og enskukunnátta
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólakennara hafa gert.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Eftirfarandi gögn skulu fylgja umsókn:
Ferilskrá
Kynningarbréf þar sem fjallað er um hvernig umsækjandi uppfyllir þær hæfnikröfur sem settar eru fram í auglýsingunni og hvað hann telur sig geta lagt af mörkum til starfsins
Afrit af prófskírteinum
Upplýsingar um umsagnaraðila
Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknafrests.
Við ráðningu í störf í Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun skólans. Vakin er athygli á málstefHÍnu Háskóla Íslands.
Háskóli Íslands hefur frá stofnun verið undirstaða atvinnulífs og framfara í íslensku samfélagi. HÍ er jafnframt framsækinn rannsóknarháskóli og virkur þátttakandi í alþjóðlegu vísindasamstarfi.
Háskóli Íslands er stærsti háskóli landsins og býður upp á hátt í 400 námsleiðir á grunn-, meistara- og doktorsstigi. Um 14.000 nemendur stunda nám við skólann, þar af yfir 2.000 alþjóðlegir nemar.
Við Háskóla Íslands starfa yfir 1.800 manns. Skólinn leggur áherslu á að laða til sín fjölbreyttan hóp starfsfólks og stúdenta í alþjóðlegt fræðasamfélag þar sem akademískt frelsi, fagmennska, jafnrétti, fjölbreytileiki og inngilding eru í öndvegi. 36 stunda vinnuvika hefur verið innleidd í stjórnsýslustörfum skólans.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 22.10.2026
Nánari upplýsingar veitir
Guðmundur H Kjærnested
Tölvupóstur: ghkjaerne@hi.is

Þjónustuaðili
Háskóli Íslands
Upplýsingar um starf
Starf
Gagnasérfræðingur við þróun vöruhúss gagna
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
12.10.2026
Umsóknarfrestur
22.10.2026