Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Sérnámsstöður í taugalækningum

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

07.09.2026

Umsóknarfrestur

28.09.2026

Sérnámsstöður í taugalækningum

Lausar eru til umsóknar sérnámsstöður í hlutasérnámi til tveggja ára í taugalækningum. Sérnámið er vottað og viðurkennt af mats- og hæfisnefnd Heilbrigðisráðuneytisins í samræmi við reglugerð 856/2023. Framgangsmat fer fram árlega. Sérnám fer fram á Landspítala.

Starfshlutfall er 100% eða samkvæmt samkomulagi. Upphafsdagur ráðningar er á bilinu janúar til mars 2027, en gert er ráð fyrir að upphaf ráðningar hjá þeim umsækjendum sem eru að klára sérnámsgrunn á Landspítala verði beint í kjölfarið af honum. Ef semja á um orlof þar á milli er það gert í samkomulagi við kennslustjóra sérgreinarinnar. Föstudaginn 26. febrúar 2027 er móttökudagur sérnáms.

Sjá kynningarmyndband.

Sjá nánari upplýsingar um sérnám á Landspítala og Sjúkrahúsinu á Akureyri.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Vinna og nám á bráðadeild, dag- og göngudeildum og legudeildum ásamt vaktþjónustu undir handleiðslu sérfræðilækna

  • Þátttaka í ráðgjafaþjónustu undir handleiðslu sérfræðilækna

  • Kennsla lækna í sérnámsgrunni, læknanema og annarra fagstétta heilbrigðisstarfsfólks

  • Þátttaka í gæða- og vísindavinnu

  • Sérnámslæknir ber sjálfur ábyrgð á fullri þátttöku í öllum þáttum sérnáms og skrásetningu þess í samræmi við marklýsingu og skráningarkerfi

  • Framgangur milli námsára er ákvarðaður með árlegu framvindumati og er launasetning í samræmi við staðfesta framvindu

  • Þátttaka í fræðslu og hermikennslu

Hæfniskröfur

  • Hafa lokið sérnámsgrunni eða sambærilegu starfsnámi, sem samþykkt hefur verið af kennsluráði sérnámsgrunns, við upphaf starfs

  • Íslenskt lækningaleyfi

  • Áhugi á að starfa við viðkomandi sérgrein

  • Að lágmarki B2 tungumálafærni í íslensku, nema um annað hafi verið samið sérstaklega

  • Fyrri starfsreynsla, reynsla af vísinda-, umbóta- og gæðastörfum æskileg

  • Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð

  • Jákvæðni, sveigjanleiki og lipurð í samskiptum

  • Áreiðanleiki, stundvísi og árangursmiðað viðhorf

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Læknafélag Íslands hafa gert.

Umsækjendum er bent sérstaklega á að kynna sér marklýsingu sérnáms og reglugerð 856/2023.

Í umsóknarformið skal skrá inn upplýsingar um:

  • Fyrri störf, menntun og hæfni

  • Félagsstörf

  • Mögulega umsagnaraðila

Nauðsynleg fylgiskjöl:

  • Starfsferilskrá

  • Kynningarbréf með persónulegum markmiðum umsækjenda varðandi starfið auk rökstuðnings fyrir hæfni.

  • Vottað afrit af prófskírteinum og starfsleyfum.

  • Tilgreind reynsla af kennslu, vísindavinnu og stjórnunarstörfum ásamt yfirliti yfir birtar vísindagreinar (eða í ritrýni) sem umsækjandi er höfundur að.

  • Staðfesting um lok sérnámsgrunns eða áætluð lok ef því er ekki nú þegar lokið. Læknar sem lokið hafa námi erlendis og ætla að fá sérnámsgrunn metinn þurfa að senda erindi á kennsluráð sérnámsgrunns á Íslandi ( sendist á formann kennsluráðsins, Ingu Sif Ólafsdóttur, ingasif@landspitali.is) og fá staðfestingu þess efnis að þeirra nám sé sambærilegt íslenska sérnámsgrunnsárinu.

Val á umsækjanda byggist á heildstæðu mati á menntun, reynslu og hæfni, með hliðsjón af innsendum gögnum, viðtölum og eftir atvikum mat á hæfni við úrlausn tilfella. Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum.

Landspítali áskilur sér rétt til að falla frá áformum frá ráðningum eða ráða fleiri en einn á grundvelli auglýsingar þessarar.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.

Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012.

Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.

Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, sérnámslæknir, læknir, læknir með lækningaleyfi, almennur læknir

Tungumálahæfni: Íslenska 3,5, enska 3/5

Staðsetning: Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 28.09.2026

Nánari upplýsingar veitir

Ólöf Jóna Elíasdóttir

Tölvupóstur: olajona@landspitali.is

Margrét Dís Óskarsdóttir

Tölvupóstur: margdis@landspitali.is

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Sérnámsstöður í taugalækningum

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

07.09.2026

Umsóknarfrestur

28.09.2026