Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Sjúkra­húsið á Akureyri

Upplýsingar um starf

Starf

Sérfræðilæknir í myndgreiningalækningum við Sjúkrahúsið á Akureyri

Staðsetning

Norðurland eystra

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

29.09.2026

Umsóknarfrestur

20.10.2026

Sérfræðilæknir í myndgreiningalækningum við Sjúkrahúsið á Akureyri

Sjúkrahúsið á Akureyri (SAk) óskar eftir sérfræðilækni í myndgreiningalækningum í 100% starf. Um er að ræða ótímabundna stöðu sem er laus frá 1. janúar 2027 eða samkvæmt samkomulagi.

Myndgreiningalækningar veita fjölþætta þjónustu og tekur þjónustusvæðið til norður- og austurlands (sjá um úrlestur fyrir 8 minni myndgreiningaþjónustur utan SAk). Deildin er mjög vel tækjum búin, auk almennra röntgentækja og nýs skyggniröntgentækis eru á deildinni tvö nýleg tölvusneiðmyndatæki (CT) og segulómtæki (MR) auk þess sem gerðar eru brjóstamyndatökur, beinþéttnimælingar og ómskoðanir.

Sjúkrahúsið á Akureyri er kennslusjúkrahús sem veitir almenna og sérhæfða heilbrigðisþjónustu. Við leggjum áherslu á bráðaþjónustu og helstu sérgreinameðferðir.

Við leitum að metnaðarfullum og góðum liðsfélaga til þess að taka þátt í áframhaldandi uppbyggingu í bæði almennri og sérhæfðari heilbrigðisþjónustu í samvinnu við reynslumikið og samstillt teymi sérfræðilækna.

Miðað er við 100% starfshlutfall.

Vertu hluti af framtíðarsýn SAk og öflugri heilbrigðisþjónustu á norður- og austurlandi, þar sem fagmennska, öryggi og metnaður fara saman.

Af hverju Sjúkrahúsið á Akureyri?

  • Góð starfsaðstaða og sterk fagleg samvinna

  • Framúrskarandi tækjabúnaður

  • Tækifæri til kennslu og þróunar

  • Lífsgæði og samfélag

  • Náttúruperla með frábærum möguleikum til útivistar

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Klínísk staða

  • Starfinu fylgir bakvaktskylda í fjarvinnu

  • Þátttaka í kennslu og þjálfun nema, sérnámslækna og annarra fagstétta

  • Tækifæri til rannsóknar og þróunar

  • Þátttaka í teymisvinnu

Hæfniskröfur

  • Fullgilt íslenskt lækningaleyfi og sérfræðiréttindi í myndgreiningalækningum

  • Færni í úrlestri rannsókna af miðtaugakerfi

  • Krafa er um breiða almenna færni í myndgreiningu

  • Færni í túlkun segulómrannsókna

  • Færni í framkvæmd ómrannsókna æskileg

  • Fagleg þekking og reynsla, auk frumkvæði og metnaðar til að veita framúrskarandi þjónustu

  • Hæfni á sviði samstarfs og sjálfstæðra vinnubragða

  • Jákvæðni, sveigjanleiki og lipurð í samskiptum

  • Gerð er krafa um vammleysi í starfi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Læknafélag Íslands hafa gert.

Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsóknum skulu fylgja ítarlegar upplýsingar um nám og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi, ef við á.

Tekið er mið af jafnréttisstefnu Sjúkrahússins á Akureyri við ráðningar í störf á sjúkrahúsinu. Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum. Öllum umsóknum verður svarað.

Sjúkrahúsið á Akureyri veitir alþjóðlega DNV-GL vottaða heilbrigðisþjónustu með ISO vottuðu gæðastjórnunarkerfi þar sem áhersla er á virka þátttöku allra starfsmanna til að uppfylla þær gæðakröfur sem gerðar eru í alþjóðlegum staðli sem sjúkrahúsið er vottað eftir.

Samkvæmt mannauðsstefnu Sjúkrahússins á Akureyri er lögð áhersla á að ráða til starfa og halda í hæfileikaríka einstaklinga. Við val á starfsfólki er menntun, reynsla, færni og hæfni höfð að leiðarljósi. Mannauðsstefnan er leiðarljós stjórnenda og starfsfólks sem gerir sjúkrahúsið framsækinn og eftirsóknarverðan vinnustað, en hún byggir á grunngildum sjúkrahússins sem eru: ÖRYGGI, SAMVINNA og FRAMSÆKNI.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 20.10.2026

Nánari upplýsingar veitir

Jóhann Davíð Ísaksson

yfirlæknir

Tölvupóstur: johannd@sak.is

Sími: 463-0100

Elvar Örn Birgisson

deildarstjóri

Tölvupóstur: elvar@sak.is

Sími: 843-5923

Þjónustuaðili

Sjúkra­húsið á Akureyri

Upplýsingar um starf

Starf

Sérfræðilæknir í myndgreiningalækningum við Sjúkrahúsið á Akureyri

Staðsetning

Norðurland eystra

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

29.09.2026

Umsóknarfrestur

20.10.2026