
Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Hjúkrunarfræðingur á taugaendurhæfingardeild Landakoti
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
80-100%
Starf skráð
31.08.2026
Umsóknarfrestur
15.09.2026
Hjúkrunarfræðingur á taugaendurhæfingardeild Landakoti
Laust er til umsóknar starf hjúkrunarfræðings á taugaendurhæfingardeild K2 Landakoti. Starfshlutfall er 80-100% eða samkvæmt nánara samkomulagi og í boði er góð aðlögun með reyndum hjúkrunarfræðingum.
Hjúkrunarfræðingum á deildinni býðst tækifæri til að þróa með sér mikla faglega þekkingu á hjúkrun eldri sjúklinga með áverka/ sjúkdóma á taugakerfinu en sérhæfð fræðsla á vegum Taugaskólans hefst í haust.
Deildin er 18 rúma meðferðar- og endurhæfingardeild fyrir sjúklinga með áverka eða sjúkdóma á taugakerfi sem koma frá bráðadeildum Landspítala. Markmiðið er að auka hæfni einstaklingsins til þess að takast á við athafnir daglegs lífs og/ eða auka líkamlega, andlega og félagslega færni þeirra. Unnið er eftir hugmyndafræði endurhæfingar sem felst m.a. í því að lögð er áhersla á að endurhæfingin sé sameiginlegt verkefni milli einstaklings sem í hlut á, þeirra sem standa honum næst og þverfaglegs teymis sem viðurkennir framlag allra þeirra sem í hlut eiga.
Á deildinni starfa um 40 einstaklingar í þverfaglegu teymi. Við vinnum markvisst að umbótum í starfi og umhverfi. Við leggjum áherslu á jákvæðni, fagmennsku og virðingu gagnvart samstarfsfólki og vinnustaðnum okkar.
Velkomið er að kíkja í heimsókn, áhugasamir hafi samband við Jóhönnu, deildarstjóra.
Helstu verkefni og ábyrgð
Ákveður, skipuleggur og veitir hjúkrunarmeðferð í samráði við skjólstæðing og ber ábyrgð á meðferð
Skipuleggur og veitir fræðslu til sjúklinga og aðstandenda
Þátttaka í teymisvinnu
Hæfniskröfur
Íslenskt hjúkrunarleyfi
Jákvætt viðmót og góðir samskiptahæfileikar
Faglegur metnaður, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
Áhugi á hjúkrun eldra fólks með sjúkdóma/áverka á taugakerfinu
Hæfni og geta til að starfa í teymi
Góð íslenskukunnátta áskilin
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Hjúkrunarfræðingur, Hjúkrun, endurhæfing, taugakerfið
Tungumálahæfni: Íslenska 4/5
Staðsetning: Túngötu, 101 Reykjavík
Starfshlutfall er 80-100%
Umsóknarfrestur er til og með 15.09.2026
Nánari upplýsingar veitir
Jóhanna Friðriksdóttir
Tölvupóstur: johannaf@landspitali.is

Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Hjúkrunarfræðingur á taugaendurhæfingardeild Landakoti
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
80-100%
Starf skráð
31.08.2026
Umsóknarfrestur
15.09.2026