
Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Aðstoðarmaður deildarstjóra á öldrunardeild L5
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
23.09.2026
Umsóknarfrestur
08.10.2026
Aðstoðarmaður deildarstjóra á öldrunardeild L5
Langar þig í fjölbreytt starf þar sem þú hefur áhrif, vinnur náið með fólki og tekur þátt í að móta öfluga starfsemi?
Við leitum að jákvæðri og skipulagðri manneskju sem hefur frumkvæði, góða yfirsýn og brennur fyrir góðri vinnustaðamenningu.
Aðstoðarmaður deildarstjóra er lykilaðili í daglegri starfsemi deildarinnar. Hann vinnur náið með deildarstjóra, aðstoðardeildarstjórum og samstarfsfólki og tekur þátt í margvíslegum verkefnum sem snúa að skipulagi, mönnun, samskiptum, umbótastarfi og þróun starfseminnar.
Þetta er starf fyrir einstakling sem hefur gaman af því að leysa úr verkefnum, halda utan um ólík mál samtímis og vinna með fjölbreyttum hópi fólks.
Öldrunardeild L5 er staðsett á Landakoti í fallegu og friðsælu umhverfi í hjarta Reykjavíkur. Á deildinni starfar samhentur hópur sem leggur áherslu á virðingu, samvinnu og fagmennsku. Unnið er í þverfaglegum teymum með það að markmiði að styðja sjúklinga til sjálfstæðis og betri lífsgæða.
Starfshlutfall er 100% og æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Áhugasömum er velkomið að hafa samband við Hjördísi, deildarstjóra.
Helstu verkefni og ábyrgð
Símavarsla og aðstoð við að stýra vaktinni ásamt vaktstjóra og hópstjóra
Umsjón með Vinnustund og ásamt mönnun og skipulagi vakta
Ýmis mannauðstengd verkefni svo sem þátttaka í móttöku og aðlögun nýrra starfsmanna, undirbúningur starfsmannasamtala og atvinnuviðtala
Yfirsýn yfir þjálfun og endurmenntun starfsfólks
Ýmis sérhæfð verkefni sem tengjast umbótastarfi, samskiptum og samhæfingu eins og að halda utan um fræðslu, starfsdaga, fundi og aðra viðburði
Yfirsýn yfir rekstrarumhverfi; viðhald, viðgerðir og samskipti deildarinnar við stoðsvið
Tengiliður deildarinnar við miðlæga þjónustu Landspítala
Ritun og úrvinnsla fundargerða og annarra gagna sem tengjast starfseminni
Önnur verkefni að beiðni deildarstjóra
Hæfniskröfur
Háskólamenntun sem nýtist í starfi skilyrði
Reynsla af sambærilegu starfi æskilegt
Leiðtoga- og skipulagshæfni
Góð samskiptahæfni sem stuðlar að góðum starfsanda
Jákvæðni, hvetjandi og lausnarmiðuð hugsun í starfi
Mjög góð almenn tölvukunnátta
Góð færni í íslensku og ensku, bæði töluðu og rituðu máli
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Viska - stéttarfélag hafa gert.
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, mannauður, umbætur, skrifstofustörf, teymisvinna
Tungumálahæfni: íslenska 4/5
Staðsetning: Túngata, 101 Reykjavík
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 08.10.2026
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Aðstoðarmaður deildarstjóra á öldrunardeild L5
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
23.09.2026
Umsóknarfrestur
08.10.2026