Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Aðstoðardeildarstjóri hjúkrunar á nýrri réttar- og öryggisgeðdeild

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

09.10.2026

Umsóknarfrestur

03.11.2026

Aðstoðardeildarstjóri hjúkrunar á nýrri réttar- og öryggisgeðdeild

Viltu taka þátt í að byggja upp nýja deild frá grunni?

Laus er til umsóknar ný og spennandi staða aðstoðardeildarstjóra hjúkrunar á réttar- og öryggisgeðdeild Landspítala. Fram undan eru miklar breytingar og uppbygging í réttar- og öryggisgeðþjónustunni og við leitum að metnaðarfullum hjúkrunarfræðingi sem vill taka virkan þátt í þeirri vegferð.

Um er að ræða einstakt tækifæri til að koma að uppbyggingu nýrrar 8 rúma legudeildar, sem gert er ráð fyrir að opni í nýuppgerðu húsnæði á Kleppi í mars 2027. Nýr aðstoðardeildarstjóri kemur inn á undirbúningstíma deildarinnar og vinnur því með deildarstjóra, forstöðuhjúkrunarfræðingi og þverfaglegu teymi að mótun þjónustu, starfsumhverfis og faglegs starfs deildarinnar.

Við leitum að hjúkrunarfræðingi sem hefur áhuga á stjórnun, geðhjúkrun og faglegri þróun og vill vaxa í hlutverki stjórnanda og leiðtoga.

Í starfi aðstoðardeildarstjóra felst virk þátttaka í stjórnun og faglegri forystu, uppbyggingu og þjálfun mannauðs, gæðaþróun og innleiðingu nýrra starfshátta. Sérstök áhersla verður á þróun sérhæfðrar geðhjúkrunar og innleiðingu gagnreyndra hjúkrunarmeðferða þar sem þarfir, bati og þátttaka sjúklings eru í forgrunni og samstarf við aðstandendur er mikilvægur hluti þjónustunnar.

Ný deild - ný tækifæri

Nýja deildin verður 8 rúma legudeild sem sinnir sérhæfðri meðferð og endurhæfingu einstaklinga með alvarlegan geðrænan vanda. Meðferðin verður einstaklingsmiðuð og fjölþætt og tekur mið af þörfum, styrkleikum og getu hvers og eins. Markmiðið er að styðja sjúklinga í bata og skapa þeim sem bestar forsendur til að lifa innihaldsríku lífi og taka þátt í samfélaginu.

Deildin verður hluti af réttar- og öryggisgeðþjónustu Landspítala og mun vinna náið með öðrum einingum þjónustunnar og ferliþjónustu. Nú standa yfir umfangsmiklar og heildstæðar umbætur í réttar- og öryggisgeðþjónustunni, bæði hvað varðar húsnæði, þjónustu og starfshætti. Aðstoðardeildarstjóri verðurlykilþátttakandi í þeirri uppbyggingu og þeim breytingum sem fram undan eru.

Starfið hentar sérstaklega reyndum hjúkrunarfræðingi sem vill taka næsta skref í starfsþróun, hafa áhrif og taka þátt í að skapa sterka faglega menningu á nýjum vinnustað.

Við bjóðum upp á markvissa aðlögun, góðan stuðning í starfi og fjölbreytt tækifæri til símenntunar, starfsþróunar og aukinnar ábyrgðar.

Upphaf ráðningar er frá 4. janúar 2027 eða eftir nánara samkomulagi.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Tekur þátt í skipulagningu og uppbyggingu nýrrar deildar

  • Skipuleggur og stjórnar daglegri starfsemi deildar eftir opnun í samráði við hjúkrunardeildarstjóra

  • Er leiðandi í klínísku starfi og framþróun hjúkrunar

  • Ábyrgð á rekstri og mönnun deildar í fjarveru hjúkrunardeildarstjóra

  • Stuðlar að hvetjandi og jákvæðu starfsumhverfi og stöðugri liðsheild

  • Þátttaka í uppbyggingu á þverfaglegri teymisvinnu

Hæfniskröfur

  • Íslenskt hjúkrunarleyfi

  • Reynsla af geðhjúkrun er kostur

  • Reynsla af umbótastarfi er kostur

  • Mjög góð samskiptahæfni og geta til að vinna undir álagi

  • Faglegur metnaður og ábyrgð í starfi

  • Mjög góð skipulagsfærni

  • Áhugi á geðhjúkrun og hjúkrunarstjórnun

  • Áhugi á þverfaglegu samstarfi og teymisvinnu

  • Góð íslenskukunnátta

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.

Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.

Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.

Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.

Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.

Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, hjúkrunarfræðingur, aðstoðardeildarstjóri hjúkrun, hjúkrun, stjórnun

Tungumálahæfni: íslenska 3/5

Staðsetning: Kleppsgarður, 104 Reykjavík

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 03.11.2026

Nánari upplýsingar veitir

Jóhanna Guðmunda Þórisdóttir

Tölvupóstur: johathor@landspitali.is

Sími: 825-1507

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Aðstoðardeildarstjóri hjúkrunar á nýrri réttar- og öryggisgeðdeild

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

09.10.2026

Umsóknarfrestur

03.11.2026