
Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Hjúkrunarfræðingur - Heimaspítali barna
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
20-50%
Starf skráð
15.10.2026
Umsóknarfrestur
02.11.2026
Hjúkrunarfræðingur - Heimaspítali barna
Vertu með frá upphafi og taktu þátt í að móta nýja þjónustu sem skiptir börn og fjölskyldur þeirra máli.
Barnaspítali Hringsins leitar að metnaðarfullum og lausnamiðuðum hjúkrunarfræðingi til að taka þátt í uppbyggingu nýs Heimaspítala barna. Um er að ræða spennandi tækifæri til að verða hluti af teymi sem vinnur að þróun nýrrar og mikilvægrar þjónustu fyrir börn og fjölskyldur þeirra. Starfið hentar hjúkrunarfræðingi sem hefur brennandi áhuga á barnahjúkrun, býr yfir sjálfstæðum vinnubrögðum og vill hafa áhrif á uppbyggingu og þróun þessarar nýju þjónustu innan Barnaspítala Hringsins.
Í Heimaspítala barna er sérhæfð spítalaþjónusta færð nær fjölskyldunum og veitt í heimahúsi. Markmiðið er að skapa börnum öruggari og betri upplifun af meðferð og draga úr þörf fyrir innlagnir þegar það er mögulegt.
Af hverju að velja Heimaspítala barna?
Einstakt tækifæri til að taka þátt í uppbyggingu Heimaspítala barna frá upphafi
Fjölbreytt og krefjandi starf þar sem fagmennska, sjálfstæði og frumkvæði fá að njóta sín
Náin samvinna við börn, fjölskyldur þeirra og þverfaglegt teymi sérfræðinga
Tækifæri til að hafa raunveruleg áhrif á þjónustu sem bætir lífsgæði barna og fjölskyldna
Heimaspítalinn hefur aðsetur á göngudeild barna 20E.
Starfið er laust frá 1. desember 2026. Um er að ræða 20-50% starfshlutfall. Unnið er á vöktum alla daga ársins kl. 08:00-16:00 og 15:00-23:00.
Helstu verkefni og ábyrgð
Veita sérhæfða hjúkrun barna í heimahúsi
Ráðgjöf, fræðsla og stuðningur við börn og fjölskyldur þeirra
Virk þátttaka í þverfaglegri teymisvinnu
Þátttaka í þróun, uppbyggingu og eflingu Heimaspítala Barna
Taka þátt í fjölbreyttum verkefnum sem tengjast starfsemi og þróun þjónustunnar eftir þörfum
Hæfniskröfur
Íslenskt starfsleyfi hjúkrunarfræðings
Að lágmarki 5 ára reynsla af hjúkrun barna
Búa yfir framúrskarandi samskiptafærni og jákvæðu viðhorfi
Frumkvæði, sjálfstæði og vera lausnarmiðaður í starfi
Gilt ökuskírteini
Hafa áhuga á að taka þátt í breytingum, nýsköpun og þróun þjónustu
Góð íslensku- og enskukunnátta
Hreint sakavottorð
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá og kynningarbréf ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Umsækjendur skulu framvísa nýju sakavottorði áður en til ráðningar getur komið, sbr. meginreglur laga um barnavernd sem m.a. koma fram í 2. mgr. 36. gr. laga nr. 80/2002.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Hjúkrunarfræðingur, hjúkrun, heimahjúkrun
Tungumálahæfni: íslenska 4/5, enska 4/5
Staðsetning: Hringbraut, 101 Reykjavík
Starfshlutfall er 20-50%
Umsóknarfrestur er til og með 02.11.2026
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Hjúkrunarfræðingur - Heimaspítali barna
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
20-50%
Starf skráð
15.10.2026
Umsóknarfrestur
02.11.2026