Þjónustuaðili
Sjúkrahúsið á Akureyri
Upplýsingar um starf
Starf
Móttökuritari á símavakt Sjúkrahússins á Akureyri
Staðsetning
Norðurland eystra
Starfshlutfall
87%
Starf skráð
21.09.2026
Umsóknarfrestur
01.10.2026
Móttökuritari á símavakt Sjúkrahússins á Akureyri
Óskum eftir að ráða móttökuritara á símavakt Sjúkrahússins á Akureyri. Við leitum að þjónustuliprum einstaklingi með góða samskiptahæfni sem er fljótur að læra og tileinka sér nýja hluti. Um er að ræða 87% stöðu á deild skrifstofu fjármála og er staðan laus frá 1. október nk. eða eftir nánara samkomulagi. Við tökum vel á móti nýju starfsfólki og veitum góða einstaklingshæfða aðlögun.
Næsti yfirmaður er Karen Sif Jónsdóttir, deildarstjóri skrifstofu fjármála
Helstu verkefni og ábyrgð
Símsvörun
Reikningagerð
Móttaka og umsýsla á pósti
sala á minningarkortum, ýmsum hjálpartækjum og útleigu á hjólastólum
Önnur tilfallandi verkefni
Hæfniskröfur
Góð íslensku- og enskukunnátta nauðsynleg
Góð tölvukunnátta
Sjálfstæði og nákvæmni í vinnubrögðum
Hæfni í mannlegum samskiptum
Góð þjónustulund
Reynsla af sambærilegu starfi kostur
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Kjölur hafa gert.
Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsóknum skulu fylgja ítarlegar upplýsingar um nám og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi, ef við á. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Sjúkrahússins á Akureyri við ráðningar í störf á sjúkrahúsinu. Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum. Öllum umsóknum verður svarað.
Sjúkrahúsið á Akureyri veitir alþjóðlega DNV-GL vottaða heilbrigðisþjónustu með ISO vottuðu gæðastjórnunarkerfi þar sem áhersla er á virka þátttöku allra starfsmanna til að uppfylla þær gæðakröfur sem gerðar eru í alþjóðlegum staðli sem sjúkrahúsið er vottað eftir.
Samkvæmt mannauðsstefnu Sjúkrahússins á Akureyri er lögð áhersla á að ráða til starfa og halda í hæfileikaríka einstaklinga. Við val á starfsfólki er menntun, reynsla, færni og hæfni höfð að leiðarljósi. Mannauðsstefnan er leiðarljós stjórnenda og starfsfólks sem gerir sjúkrahúsið framsækinn og eftirsóknarverðan vinnustað, en hún byggir á grunngildum sjúkrahússins sem eru: ÖRYGGI, SAMVINNA og FRAMSÆKNI.
Starfshlutfall er 87%
Umsóknarfrestur er til og með 01.10.2026
Nánari upplýsingar veitir
Þjónustuaðili
Sjúkrahúsið á Akureyri
Upplýsingar um starf
Starf
Móttökuritari á símavakt Sjúkrahússins á Akureyri
Staðsetning
Norðurland eystra
Starfshlutfall
87%
Starf skráð
21.09.2026
Umsóknarfrestur
01.10.2026