Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Sérnámsstaða í innkirtlalækningum

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

07.09.2026

Umsóknarfrestur

28.09.2026

Sérnámsstaða í innkirtlalækningum

Laus er til umsóknar sérnámsstaða í innkirtlalækningum. Um er að ræða undirsérgrein lyflækninga og er það forkrafa að vera með sérfræðileyfi í þeirri sérgrein.

Sérnámið er byggt á marklýsingu Royal Colleges of Physicians Training Board í Bretlandi og vottað af mats- og hæfisnefnd Heilbrigðisráðuneytisins í samræmi við reglugerð 856/2023. Sérnámið er í heild þrjú ár, það fer fram á Landspítala fyrstu tvö árin en síðan er gert ráð fyrir að viðkomandi læknir fari erlendis og ljúki tólf mánaða þjálfun, að því loknu telst námið fullgilt.

Starfshlutfall er 100% eða samkvæmt samkomulagi. Upphafsdagur ráðningar er á bilinu janúar til mars 2027 eða samkvæmt samkomulagi við kennslustjóra sérgreinarinnar. Föstudaginn 26. febrúar 2027 er móttökudagur sérnáms.

Sjá nánari upplýsingar um sérnám á Landspítala og Sjúkrahúsinu á Akureyri.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Vinna og nám á legudeildum og göngudeildum ásamt vaktþjónustu almennra lyflækninga og undirsérgreinar skv. marklýsingu

  • Þátttaka í ráðgjafaþjónustu undir handleiðslu sérfræðilækna

  • Kennsla lækna í sérnámi, sérnámsgrunni, læknanema og annarra fagstétta heilbrigðisstarfsfólks

  • Þátttaka í gæða- og vísindavinnu

  • Sérnámslæknir ber sjálfur ábyrgð á fullri þátttöku í öllum þáttum sérnáms og skrásetningu þess í samræmi við marklýsingu og skráningarkerfi

  • Framgangur milli námsára er ákvarðaður með árlegu framvindumati

Hæfniskröfur

  • Íslenskt sérfræðileyfi í lyflækningum

  • Áhugi á að starfa við viðkomandi sérgrein

  • Að lágmarki B2 tungumálafærni í íslensku, nema um annað hafi verið samið sérstaklega

  • Fyrri starfsreynsla, reynsla af vísinda-, umbóta- og gæðastörfum æskileg

  • Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð

  • Jákvæðni, sveigjanleiki og lipurð í samskiptum

  • Áreiðanleiki, stundvísi og árangursmiðað viðhorf

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Læknafélag Íslands hafa gert.

Umsækjendum er bent sérstaklega á að kynna sér marklýsingu sérnáms og reglugerð 856/2023.

Í umsóknarformið skal skrá inn upplýsingar um:

  • Fyrri störf, menntun og hæfni

  • Félagsstörf

  • Mögulega umsagnaraðila

Vottað afrit af prófskírteinum og starfsleyfum

Nauðsynleg fylgiskjöl:

  • Starfsferilskrá

  • Kynningarbréf með persónulegum markmiðum umsækjenda varðandi starfið auk rökstuðnings fyrir hæfni.

  • Vottað afrit af prófskírteinum og starfsleyfum.

  • Tilgreind reynsla af kennslu, vísindavinnu og stjórnunarstörfum ásamt yfirliti yfir birtar vísindagreinar (eða í ritrýni) sem umsækjandi er höfundur að.

Val á umsækjanda byggist á heildstæðu mati á menntun, reynslu og hæfni, með hliðsjón af innsendum gögnum, viðtölum og eftir atvikum mat á hæfni við úrlausn tilfella. Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum.

Landspítali áskilur sér rétt til að falla frá áformum frá ráðningum eða ráða fleiri en einn á grundvelli auglýsingar þessarar.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.

Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012.

Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.

Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, sérfræðilæknir, sérnámslæknir, læknir með lækningaleyfi

Tungumálahæfni: Íslenska 3,5, enska 3/5

Staðsetning: Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 28.09.2026

Nánari upplýsingar veitir

Arna Guðmundsdóttir

Tölvupóstur: arnagu@landspitali.is

Margrét Dís Óskarsdóttir

Tölvupóstur: margdis@landspitali.is

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Sérnámsstaða í innkirtlalækningum

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

07.09.2026

Umsóknarfrestur

28.09.2026