Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Sérfræðingur í hjúkrun barna - Göngudeild Barnaspítala Hringsins

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

80%

Starf skráð

06.11.2026

Umsóknarfrestur

18.11.2026

Sérfræðingur í hjúkrun barna - Göngudeild Barnaspítala Hringsins

Laust er til umsóknar starf sérfræðings í hjúkrun barna á göngudeild Barnaspítala Hringsins.

Auglýst er eftir kraftmiklum sérfræðingi í hjúkrun barna til að efla öryggi, gæði og framþróun með áherslu á þjónustu við börn með hjartasjúkdóma og svefnrannsóknir.

Starf sérfræðings í hjúkrun barna nær þvert yfir Barnaspítala Hringsins og því leitum við að einstaklingi sem hefur sterka heildarsýn, býr yfir lausnamiðaðri hugsun og er tilbúinn að leggja sitt af mörkum þar sem þörf er á.

Sérfræðingur í hjúkrun er sýnilegur leiðtogi sem veitir sérhæfða hjúkrun, miðlar sérfræðiþekkingu, styður við samstarfsfólk og styrkir starfsemi Barnaspítalans í heild og hjálpar honum þannig að ná markmiðum sínum.

Þetta er einstakt tækifæri fyrir sérfræðing sem hefur brennandi áhuga á klínísku starfi, umbótum, nýsköpun og þróun barnahjúkrunar og vill hafa áhrif á þjónustu við börn með hjartasjúkdóma og fjölskyldur þeirra og áframhaldandi uppbyggingu og þróun svefnrannsókna barna.

Starfshlutfall er 80% og er starfið laust frá 1. janúar 2027 eða eftir samkomulagi.

Barnaspítali Hringsins hefur forystu í heilbrigðisþjónustu við börn á Íslandi og fjölskyldur þeirra. Þar er veitt fjölbreytt heilbrigðisþjónusta sem krefst mikillar sérhæfingar og náinnar samvinnu við þjónustuþega.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Klínísk störf í samræmi við gagnreynda þekkingu

  • Þróun hjúkrunar og þjónustu, innleiðing nýrra verkferla og eftirfylgni

  • Ráðgjöf til sjúklinga, fjölskyldna og fagaðila

  • Leiðsögn, kennsla og fræðsla

  • Rannsóknir og gæðastörf

  • Innleiðing og eftirfylgd nýrra verkefna

  • Taka virkan þátt í að mæta breytilegum þörfum starfseminnar, t.d. með því að leggja öðrum teymum lið

  • Stuðlar að liðsheild og menningu sálræns öryggis

  • Starfar í anda þess að sjúkrahúsþjónusta byggir á teymisvinnu

Hæfniskröfur

  • Meistara- eða doktorspróf í hjúkrun

  • Íslenskt sérfræðileyfi í hjúkrun barna

  • Starfsreynsla við hjúkrun barna

  • Farsæl reynsla af gæða- og umbótastarfi

  • Farsæl reynsla af kennslu og fræðslu kostur

  • Leiðtoga- og samskiptahæfileikar

  • Hæfni til að starfa í teymi

  • Sveigjanleiki og vilji til að sinna verkefnum þvert á starfseiningar þegar þörf krefur.

  • Hæfni til að aðlagast breytilegum verkefnum og styðja við samfellu þjónustu.

  • Frumkvæði og drifkraftur

  • Hreint sakavottorð

  • Mjög góð íslenskukunnátta og færni til að tjá sig í mæltu og rituðu máli

Frekari upplýsingar um starfið

Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.

Í umsóknarformið skal skrá inn upplýsingar um:

  • Fyrri störf, menntun og hæfni

  • Félagsstörf og umsagnaraðila

Nauðsynleg fylgiskjöl:

  • Vottað afrit af prófskírteinum og starfsleyfum

  • Ferilskrá þar sem tilgreind er reynsla af kennslu, rannsóknum, gæða- og þróunarverkefnum

  • Kynningarbréf með rökstuðningi fyrir hæfni og sýn á starfið

Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.

Ákvörðun um ráðningu í starfið byggist á innsendum gögnum og viðtölum. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem yfir 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.

Umsækjendur skulu framvísa nýju sakavottorði áður en til ráðningar getur komið, sbr. meginreglur laga um barnavernd sem m.a. koma fram í 2. mgr. 36. gr. laga nr. 80/2002.

Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012.

Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.

Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Hjúkrunarfræðingur, Hjúkrun, Sérfræðingur í hjúkrun

Tungumálahæfni: Íslenska 5/5

Staðsetning: Hringbraut, 101 Reykjavík

Starfshlutfall er 80%

Umsóknarfrestur er til og með 18.11.2026

Nánari upplýsingar veitir

Jóhanna Lilja Hjörleifsdóttir

Tölvupóstur: johahjor@landspitali.is

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Sérfræðingur í hjúkrun barna - Göngudeild Barnaspítala Hringsins

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

80%

Starf skráð

06.11.2026

Umsóknarfrestur

18.11.2026