Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Innköllunarstjóri/ heilbrigðisritari eða skrifstofumaður á göngudeild augnsjúkdóma

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

15.09.2026

Umsóknarfrestur

28.09.2026

Innköllunarstjóri/ heilbrigðisritari eða skrifstofumaður á göngudeild augnsjúkdóma

Göngudeild augnsjúkdóma á Eiríksgötu 5 leitar að öflugum einstaklingi til liðs við gott teymi deildarinnar í starf innköllunarstjóra. Starfið er fjölbreytt og krefjandi og felur í sér skipulag, innköllun og umsjón með sjúklingum sem fara í augnaðgerðir og lyfjagjafir í augu, auk annarra verkefna sem tengjast starfsemi deildarinnar.

Í boði er:

  • Fjölbreytt, tæknilegt og líflegt starf

  • Einstaklingsmiðuð starfsþjálfun

  • Sérhæft starfsumhverfi þar sem ríkir góður starfsandi og þverfaglegt samstarf

Unnið er í dagvinnu, virka daga. Starfshlutfall er 100% og ráðið er í starfið frá 1. desember 2026 eða eftir nánara samkomulagi. Vinnuvika starfsfólks í fullri dagvinnu er 36 stundir sem styður við betra jafnvægi milli vinnu og einkalífs.

Við tökum vel á móti nýju starfsfólki og veitum einstaklingsmiðaða aðlögun. Áhugasömum er velkomið að hafa samband við Sigrúnu, deildarstjóra.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Innköllun, skipulagning og uppsetning fyrir aðgerðir og lyfjagjafir í augu

  • Umsjón með biðlistum og samstarf í vinnu innköllunar og innskriftar fyrir aðgerðir

  • Þátttaka í þverfaglegri teymisvinnu

  • Önnur tilfallandi störf sem tengjast starfsemi deildarinnar

Hæfniskröfur

  • Heilbrigðisritaranám, stúdentspróf eða annað sambærilegt nám og/ eða reynsla sem nýtist í starfi

  • Skipulögð vinnubrögð og sjálfstæði í starfi

  • Þjónustulund, jákvætt viðmót og góðir samskiptahæfileikar

  • Áhugi á að starfa í krefjandi og fjölbreyttu umhverfi

  • Góð tölvukunnátta og þekking á kerfum LSH æskileg

  • Góð íslensku- og enskukunnátta

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert.

Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.

Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.

Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.

Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.

Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, heilbrigðisritari, innköllunarstjóri, skrifstofustörf, teymisvinna

Tungumálahæfni: Íslenska 4/5, enska 4/5

Staðsetning: Eiríksgata 5, 101 Reykjavík

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 28.09.2026

Nánari upplýsingar veitir

Sigrún Sæmundsdóttir

deildarstjói

Tölvupóstur: sigrusae@landspitali.is

Sími: 893-5054

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Innköllunarstjóri/ heilbrigðisritari eða skrifstofumaður á göngudeild augnsjúkdóma

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

15.09.2026

Umsóknarfrestur

28.09.2026