Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Lögreglu­stjórinn á Suður­nesjum

Upplýsingar um starf

Starf

Yfirlögregluþjónn Landamærasviðs hjá embætti lögreglustjórans á Suðurnesjum

Staðsetning

Suðurnes

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

18.09.2026

Umsóknarfrestur

02.10.2026

Yfirlögregluþjónn Landamærasviðs hjá embætti lögreglustjórans á Suðurnesjum

Við embætti lögreglustjórans á Suðurnesjum er laus til umsóknar staða yfirlögregluþjóns á landamærasviði. Um spennandi, krefjandi og fjölbreytt starf er að ræða sem heyrir undir lögreglustjóra.

Yfirlögregluþjónn á landamærasviði annast daglegan rekstur sviðsins en meðal helstu verkefni deildarinnar eru löggæsla, landamæraeftirlit, öryggismál ofl. Embætti Lögreglustjórans á Suðurnesjum gegnir lykilhlutverki í landamæra- og útlendingamálum og fram undan er áframhaldandi þróun og uppbygging verkefna á því sviði.

Hjá embættinu starfa um 220 manns í fjölbreyttum og krefjandi störfum. Rúmlega helmingur starfsmanna starfar á Keflavíkurflugvelli, sem er fjölmennasta starfsstöð embættisins. Starfsstöðvar embættisins eru þrjár.

Lögreglan á Suðurnesjum er framsækin þjónustustofnun þar sem áhersla er lögð á mannauð, fagmennsku og traust. Verkefni embættisins eru fjölbreytt og áhersla er lögð á góða þjónustu við nærsamfélagið og aðra sem fara um umdæmið, öfluga löggæslu, almannavarnir og að tryggja lögmæta umferð um landamæri Íslands.

Gildi embættisins eru fagmennska, heiðarleiki og traust.

Gert er ráð fyrir að setja í embættið til reynslu í 6 mánuði frá og með 1. nóvember 2026 með skipun í huga að loknum reynslutíma. Starfshlutfall er 100%.

Helstu verkefni og ábyrgð

Verkefni yfirlögregluþjóns eru í samræmi við 5. gr. reglugerðar nr. 1051/2006 um starfsstig innan lögreglu, þ.á.m. þátttaka í áætlanagerð, skipulagningu og markmiðasetningu embættisins, eftirlit með því að reglum og fyrirmælum sé framfylgt, stjórn og ábyrgð á tilteknum verkefnum sem honum eru falin og krefjast sérstakrar þekkingar, þjálfunar eða menntunar. Í starfinu felst meðal annars:

  • Ábyrgð á daglegum rekstri og starfsemi flugstöðvardeildar embættisins.

  • Þátttaka í áætlangerð, skipulagningu og markmiðasetningu embættisins og tryggir að unnið sé í samræmi við stefnu, áherslur og markmið.

  • Ábyrgð á starfsmannamálum í samráði við lögreglustjóra þ.m.t. að gæta þess að starfsmannastefnu og viðeigandi lögum sé framfylgt, tryggja viðunandi mönnun og meta þörf fyrir fræðslu og menntun starfsfólks.

  • Samstarf og samráð með innlendum og erlendum samstarfsaðilum.

  • Almennt fyrirsvar og samskipti við ráðuneyti, önnur embætti, stofnanir og fjölmiðla um verkefni landamærasviðs og annarra deilda í samráði við lögreglustjóra.

  • Seta í framkvæmdarstjórn embættisins og þátttaka í stefnumótun.

Hæfniskröfur

Umsækjendur skulu uppfylla skilyrði 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 1051/2006 um starfsstig innan lögreglu en aðrar hæfniskröfur eru auk þess:

  • Yfirgripsmikil þekking og reynsla af starfsemi lögreglu.

  • Farsæl reynsla af stjórnun innan lögreglu.

  • Reynsla af landamæra- og útlendingamálum er æskileg.

  • Reynsla og þekking á alþjóðlegu lögreglusamstarfi er æskileg.

  • Rekstrarþekking og/eða reynsla.

  • Framúrskarandi forystu-, samvinnu- og samskiptahæfni.

  • Fagmennska, frumkvæði, drifkraftur og jákvæðni.

  • Mjög gott vald á íslensku og ensku og færni til að tjá sig í ræðu og riti.

Þess er vænst að umsækjandi hafi reynslu af störfum þar sem reynt hefur á þessa eiginleika.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Landssamband lögreglumanna hafa gert.

Umsókn um stöðuna skal fylgja ítarleg ferilskrá, kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjanda til starfsins, auk afrita af prófskírteinum.

Vakin er athygli á því að engan má ráða til starfa hjá lögreglu sem hlotið hefur fangelsisdóm fyrir refsiverðan verknað sem framinn var eftir að viðkomandi varð fullra 18 ára eða sýnt af sér háttsemi sem getur rýrt það traust sem starfsmenn lögreglu verða almennt að njóta. Til þess að staðreyna þetta er lögreglu heimilt að afla upplýsinga úr sakaskrá og málaskrám lögreglu, sbr. 28. gr. a lögreglulaga nr. 90/1996.

Við ráðningu er tekið mið af jafnréttisáætlun lögreglu.

Í ráðningarferlinu verður jafnframt stuðst við stjórnendastefnu ríkisins þar sem meðal annars er lögð áhersla á að stjórnendur gangi fram með góðu fordæmi, sýni frumkvæði og stuðli að árangursríku og heilbrigðu starfsumhverfi.

Umsóknir sem berast eftir að umsóknarfresti lýkur verða ekki teknar til greina. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um setningu liggur fyrir.

Sækja skal um stöðuna með rafrænum hætti á vef Starfatorgs, www.starfatorg.is.

Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 02.10.2026

Nánari upplýsingar veitir

Margrét Kristín Pálsdóttir

Lögreglustjóri

Tölvupóstur: mkp01@logreglan.is

Sími: 4442200

Þjónustuaðili

Lögreglu­stjórinn á Suður­nesjum

Upplýsingar um starf

Starf

Yfirlögregluþjónn Landamærasviðs hjá embætti lögreglustjórans á Suðurnesjum

Staðsetning

Suðurnes

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

18.09.2026

Umsóknarfrestur

02.10.2026