Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Skrifstofumaður - Lyflækningar krabbameina

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

80-100%

Starf skráð

23.10.2026

Umsóknarfrestur

09.11.2026

Skrifstofumaður - Lyflækningar krabbameina

Við sækjumst eftir skrifstofumanni til fjölbreyttra og sérhæfðra starfa á skrifstofu lyflækninga krabbameina. Starfið felur í sér mikil samskipti og fjölbreytt og krefjandi verkefni. Unnið er í teymi með sérfræðilæknum í krabbameinslækningum og öðru starfsfólki einingarinnar og er skrifstofumaður þjónustunnar mikilvægur hluti teymisins.

Starfshlutfall er 80-100%, unnið er í dagvinnu og er starfið laust nú þegar eða eftir nánara samkomulagi.

Vinnuvika starfsfólks í fullri dagvinnu er 36 stundir. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Umsjón og frágangur sjúkragagna (sjúkraskráa og læknabréfa) og almenn skrifstofustörf

  • Fjölbreytt skrifstofustörf á skrifstofu lyflækninga krabbameina

  • Þátttaka i teymisvinnu

  • Skipuleggja og hafa yfirsýn yfir fundi, vinnustofur og aðra viðburði innan sérgreinarinnar

  • Svörun ráðgjafarsíma í samvinnu við hjúkrunarfræðing og sérfræðilækna

  • Upplýsingagjöf og samskipti við sjúklinga, starfsmenn og stofnanir

  • Þátttakandi í þróun upplýsingatækni við ritun í rafræna sjúkraskrá þjónustunnar

  • Vinna að verkefnum tengdum klínískri skráningu

  • Samvinna og samstarf við aðrar sérgreinar

  • Ýmis verkefni fyrir sérfræðinga og fagfólk sérgreinarinnar

Hæfniskröfur

  • Stúdentspróf eða önnur menntun og reynsla sem nýtist í starfi

  • Öguð, sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð

  • Jákvætt viðmót og góðir samskiptahæfileikar

  • Gott vald á íslensku og ensku

  • Góð tölvuþekking og færni í helstu tölvuforritum

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert.

Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.

Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.

Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.

Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.

Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, skrifstofumaður

Tungumálahæfni: Íslenska 4/5, enska 4/5

Staðsetning: Hringbraut, 101 Reykjavík

Starfshlutfall er 80-100%

Umsóknarfrestur er til og með 09.11.2026

Nánari upplýsingar veitir

Agnes Smáradóttir

yfirlæknir

Tölvupóstur: agnessma@landspitali.is

Sími: 5436866

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Skrifstofumaður - Lyflækningar krabbameina

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

80-100%

Starf skráð

23.10.2026

Umsóknarfrestur

09.11.2026