Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Heilsu­gæsla höfuð­borg­ar­svæð­isins

Upplýsingar um starf

Starf

Sálfræðingur - Geðheilsumiðstöð barna HH

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

80-100%

Starf skráð

31.08.2026

Umsóknarfrestur

21.09.2026

Sálfræðingur - Geðheilsumiðstöð barna HH

Hefur þú áhuga á að taka þátt í starfi með börnum og unglingum með geðrænan vanda?

Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins leitar af sálfræðingi til starfa í meðferðateymi hjá Geðheilsumiðstöð barna. Við óskum eftir drífandi, metnaðarfullum og jákvæðum sálfræðingi sem hefur áhuga á að vinna samkvæmt klínískum leiðbeiningum við mat og meðferð barna og ungmenna með miðlungs til alvarlegan geðrænan vanda. Starfað er í þverfaglegu meðferðarteymi við mat, meðferð og ráðgjöf til barna og fjölskyldna þeirra. Teymið veitir einnig ráðgjöf til fagaðila og annarra þjónustuaðila á landsvísu. Starfið felur í sér einstakt tækifæri til að taka þátt í og hafa áhrif á mótun og uppbyggingu þjónustu og hentar fagaðila sem vill hafa áhrif á geðheilbrigðisþjónustu barna til frambúðar.

Geðheilsumiðstöð barna veitir 2. stigs heilbrigðisþjónustu á landsvísu fyrir fjölskyldur með börn frá meðgöngu að 18 ára aldri. Miðstöðin sinnir greiningu, ráðgjöf og meðferð vegna geð- og taugaþroskavanda barna og unglinga ásamt því að styðja við tengslamyndun foreldra og barna frá 0-5 ára. Starfshópur GMB er þverfaglegur og vinnur eftir markvissu skipulagi með fagleg gæði að leiðarljósi. Áhersla er á gott viðmót og fjölskyldumiðaða þjónustu. GMB á reglulegt samstarf við þjónustuveitendur víðsvegar um landið og sinnir starfsþjálfun háskólanema á sviðinu.

Um er að ræða 80-100% ótímabundið starf og æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1. nóvember nk. eða eftir nánara samkomulagi. Til greina kemur að ráða tímabundið áhugasaman reynsluminni sálfræðing í annað starf fáist ekki sálfræðingur með reynslu í starfið.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Greining og mat á miðlungs til alvarlegum geðrænum vanda hjá börnum og ungmennum að 18 ára aldri

  • Sérhæfð meðferð á miðlungs til alvarlegum geðrænum vanda hjá börnum og ungmennum að 18 ára aldri

  • Ráðgjöf til foreldra og nærumhverfis út frá þörf skjólstæðinga

  • Þátttaka í umbótastarfi, faglegri þróun teymis og uppbyggingu gagnreyndrar geðheilbrigðisþjónustu

  • Þátttaka í þverfaglegri teymisvinnu

Hæfniskröfur

  • Starfsleyfi frá Embætti landlæknis sem sálfræðingur

  • 5 ára starfsreynsla af klínísku starfi er æskileg

  • Reynsla af þverfaglegri teymisvinnu við meðferð og greiningu á geð- og taugaþroskavanda barna

  • Þekking og reynsla af notkun sálfræðilegra matstækja og greiningu algengustu geðraskana barna og ungmenna er æskileg

  • Þekking á mat og meðferð á taugaþroskavanda kostur

  • Sérhæfing á sviði þroska-, geð- og hegðunarvanda hjá börnum æskileg

  • Frumkvæði, áhugi og metnaður fyrir því að veita árangursríka, gagnreynda meðferð

  • Hlýlegt viðmót og góð hæfni í mannlegum samskiptum

  • Faglegur metnaður

  • Sjálfstæði, frumkvæði, skipulagshæfni og öguð vinnubrögð

  • Hæfni til að veita meðferð í flóknum aðstæðum og lausnamiðuð nálgun

  • Áhugi og vilji til að starfa í þverfaglegu teymi

  • Góð almenn tölvukunnátta

  • Góð íslenskukunnátta

  • Góð almenn enskukunnátta

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni í starfið. Jafnframt skal leggja fram afrit af leyfisbréfi og prófskírteinum ásamt hreinu sakavottorði.

Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Katli Berg Magnússyni, framkvæmdarstjóra mannauðs og nýliðunar Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík.

Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Tekið er mið af jafnréttis- og mannréttindastefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.

Starfshlutfall er 80-100%

Umsóknarfrestur er til og með 21.09.2026

Nánari upplýsingar veitir

Linda Kristmundsdóttir

Forstöðumaður

Tölvupóstur: Linda.Kristmundsdottir@heilsugaeslan.is

Sími: 513-6600

Ragnheiður Lára Guðrúnardóttir

Teymisstjóri ráðgjafa- og meðferðateymis

Tölvupóstur: ragnheidur.lara.gudrunardottir@heilsugaeslan.is

Sími: 513-6600

Þjónustuaðili

Heilsu­gæsla höfuð­borg­ar­svæð­isins

Upplýsingar um starf

Starf

Sálfræðingur - Geðheilsumiðstöð barna HH

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

80-100%

Starf skráð

31.08.2026

Umsóknarfrestur

21.09.2026