Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Ríkis­lög­reglu­stjóri

Upplýsingar um starf

Starf

Aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá embætti ríkislögreglustjóra

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

14.10.2026

Umsóknarfrestur

28.10.2026

Aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá embætti ríkislögreglustjóra

Aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá embætti ríkislögreglustjóra

Embætti ríkislögreglustjóra leitar að öflugum leiðtoga til að stýra greiningardeild embættisins.

Við leitum að einstaklingi sem býr yfir sterkri leiðtogahæfni, víðtækri þekkingu og reynslu af öryggis- og greiningarmálum og metnaði til að leiða mikilvægt fagstarf á sviði þjóðaröryggis og löggæslu. Aðstoðaryfirlögregluþjónn (jafnframt deildarstjóri) gegnir lykilhlutverki í daglegum rekstri greiningardeildar, stýrir upplýsingasöfnun, úrvinnslu og greiningu og tryggir skilvirka miðlun upplýsinga og áhættumats til viðeigandi hagaðila. Starfið felur jafnframt í sér ábyrgð á faglegri starfsemi, fjármálum og mannauðsmálum deildarinnar.

Gert er ráð fyrir því að setja í stöðuna til reynslu í 6 mánuði frá og með 1. nóvember 2026 með skipun í huga að loknu reynslutímabili. Um er að ræða 100% starf.

Um greiningardeild

Greiningardeild gegnir mikilvægu hlutverki í starfsemi lögreglunnar með áherslu á öflun, úrvinnslu og greiningu upplýsinga í því skyni að fyrirbyggja og draga úr líkum á afbrotum og ógnum við öryggi ríkisins. Meginverkefni deildarinnar lúta að rannsóknum á landráðum og brotum gegn stjórnskipan ríkisins og æðstu stjórnvöldum þess, auk þess að leggja mat á hættu á skipulagðri brotastarfssemi og hættu á hryðjuverkum.

Greiningardeild veitir lögregluembættum, stofnunum og öðrum hagaðilum upplýsingar, áhættugreiningar og sérfræðiráðgjöf á sviði öryggismála. Deildin tekur jafnframt þátt í innlendu og erlendu samstarfi á sviði netógna, skipulagðrar brotastarfsemi og hryðjuverka. Að auki gegnir deildin hlutverki öryggisstjórnvalds gagnvart alþjóðastofnunum og ríkjum samkvæmt alþjóðlegum skuldbindingum ríkisins varðandi miðlun trúnaðarupplýsinga og sérstakar öryggisráðstafanir.

Helstu verkefni og ábyrgð

Verksvið og ábyrgð aðstoðaryfirlögregluþjóns eru tilgreind í 6. gr. reglugerðar nr. 1051/2006 um starfsstig innan lögreglu, t.a.m. stjórn og ábyrgð á deild og tilteknum verkefnum sem þarfnast sérstakrar þekkingar og eftirlit með að reglum og fyrirmælum sé fylgt.

Í starfinu felst auk þess að:

  • Stýra upplýsingasöfnun, úrvinnslu og greiningu á upplýsingum í því skyni að koma í veg fyrir eða draga úr líkum á afbrotum.

  • Miðla upplýsingum, áhættugreiningum og öðrum afurðum greiningardeildar til lögregluembætta, stofnana og annarra hagaðila.

  • Tryggja skilvirka vinnu við öflun upplýsinga, greiningu, mat og útgáfu skýrslna vegna hættu sem stafar af skipulagðri brotastarfsemi, hryðjuverkum og eftir atvikum annarra brota er falla undir X. og XI. kafla almennra hegningarlaga nr. 19/1940, með síðari breytingum.

  • Annast og hafa umsjón með gerð áhættugreininga vegna ýmissa viðburða og heimsókna.

  • Stýra áhættugreiningu vegna einstaklinga og afla upplýsinga vegna verndar og öryggisgæslu æðstu stjórnar ríkisins.

  • Veita ráðgjöf um viðbúnað sem hefur þýðingu fyrir öryggishagsmuni ríkisins og þjóðhagslega mikilvæga starfsemi.

  • Taka þátt í innlendu og erlendu samstarfi á sviði netógna og veitir ráðgjöf á því sviði.

  • Taka þátt í undirbúningi og framkvæmd fjölbreyttra aðgerða og verkefna til stuðnings lögreglunni með öflun og greiningu upplýsinga sem tengjast öryggi ríkisins.

  • Greiningardeild gegnir hlutverki öryggisstjórnvalds (NSA) gagnvart alþjóðastofnunum og ríkjum samkvæmt skuldbindingum ríkisins varðandi miðlun trúnaðarupplýsinga og krafist er sérstakra öryggisráðstafana þar sem viðkvæmar upplýsingar eru meðhöndlaðar eða vistaðar.

  • Bera ábyrgð á útgáfu öryggisvottana á grundvelli reglugerðar nr. 959/2012 og framkvæmd öryggisúttekta.

  • Bera ábyrgð á tilteknum verkefnum tengdum þátttöku Íslands í NATO.

  • Byggja og viðhalda öflugu samstarfi við innlenda og erlenda samstarfsaðila á sviði skipulagðrar brotastarfsemi, hryðjuverka og annarra verkefna greiningardeildar.

  • Fylgjast með nýjungum og þróun á sviði skipulagðrar glæpastarfsemi og hryðjuverka og miðla þekkingu til starfsfólks deildarinnar og annarra hagaðila.

Hæfniskröfur

Umsækjendur skulu uppfylla skilyrði 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 1051/2006 um starfsstig innan lögreglu en aðrar hæfniskröfur eru auk þess:

Menntun og reynsla

  • Próf frá Lögregluskóla ríkisins eða diplómapróf í lögreglufræðum sem jafngildir a.m.k. 120 ECTS stöðluðum námseiningum, þ.m.t. starfsnámi á vegum lögreglunnar er skilyrði.

  • Sterkir leiðtogahæfileikar og farsæl stjórnunarreynsla sem nýtist í starfi er skilyrði.

  • Umfangsmikil þekking og reynsla á sviði öryggismála, þar á meðal af rannsókn mála, aðgerðarmiðaðri greiningu, áhættumati og stefnumiðaðri greiningu er skilyrði.

  • Reynsla af innlendu og erlendu samstarfi á sviði öryggismála, skipulagðrar brotastarfsemi eða hryðjuverka er skilyrði.

  • Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu er skilyrði.

  • Góð skipulagshæfni og reynsla af stjórnun umfangsmikilla verkefna er kostur.

  • Þekking á netógnum og þróun öryggismála er kostur.

  • Reynsla af gerð rekstrar- og verkefnaáætlana er kostur.

  • Mjög góð færni í íslensku og ensku í ræðu og riti er kostur.

Persónubundnir þættir

  • Leiðtogahæfni og geta til að hvetja og styðja starfsfólk til árangurs.

  • Góð samskiptahæfni og geta til að byggja upp árangursríkt samstarf.

  • Sjálfstæði í vinnubrögðum og hæfni til að taka upplýstar ákvarðanir.

  • Góð skipulagshæfni og geta til að forgangsraða verkefnum við krefjandi aðstæður.

  • Frumkvæði, lausnamiðuð hugsun og metnaður til að ná árangri í starfi.

  • Aðlögunarhæfni og geta til að takast á við síbreytileg og flókin verkefni.

  • Geta til að vinna undir álagi og viðhalda faglegum vinnubrögðum við krefjandi aðstæður.

  • Áhugi á þróun öryggismála, greiningarstarfi og stöðugum umbótum.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Landssamband lögreglumanna hafa gert.

Embætti ríkislögreglustjóra er lifandi þekkingarvinnustaður sem býr að framúrskarandi mannauði sem sinna fjölbreyttum og samfélagslega mikilvægum verkefnum. Lögð er áhersla á opin og jákvæð samskipti, markvissa starfsþróun og samræmingu vinnu og fjölskyldulífs. Embætti ríkislögreglustjóra hefur hlotið jafnlaunavottun.

Stefna embættis ríkislögreglustjóra:

  • Tilgangur: Að vernda og virða

  • Sýn: Að vinna að öruggara samfélagi

  • Markmið: Að vera þjónustudrifin, framsækin og upplýsandi

  • Áherslur: Þjónusta - fagmennska - mannauður - tækni - reksturs

Umsóknarfrestur er til og með 28. október 2026. Umsóknir sem berast eftir að umsóknarfresti lýkur verða ekki teknar til greina. Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá lokum umsóknarfrests. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Áskilinn er réttur til að hafna öllum umsóknum.

Umsækjendur skulu senda inn ferilskrá ásamt kynningarbréfi þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist til að sinna starfinu í samræmi við þær hæfniskröfur sem fram koma í auglýsingu. Umsóknir skulu berast rafrænt í gegnum Starfatorg. Umsækjendum um störf hjá embætti ríkislögreglustjóra kann að vera gert að leysa verkefni í ráðningarferlinu sem kæmu, auk annarra þátta, heildstætt inn í mat á hæfni þeirra til viðkomandi starfa.

Vakin er athygli á því að samkvæmt 28. gr. a. lögreglulaga nr. 90/1996 má engan skipa, setja eða ráða til starfa hjá lögreglu sem hefur hlotið fangelsisdóm fyrir refsiverðan verknað sem framinn var eftir að hann varð fullra 18 ára eða sýnt af sér háttsemi sem getur rýrt það traust sem starfsmenn lögreglu verða almennt að njóta. Til þess að staðreyna þetta er lögreglu heimilt að afla upplýsinga úr sakaskrá og málaskrám lögreglu. Með vísan til 24. gr. varnarmálalaga nr. 34/2008 og 20. gr. reglugerðar nr. 959/2012, sbr. einnig 30. og 31. gr. reglugerðarinnar þarf starfsmaður að standast bakgrunnskoðun til að hljóta öryggisvottun vegna starfans.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 28.10.2026

Nánari upplýsingar veitir

Dagný Tra Magnadóttir

Tölvupóstur: dagny.magnadottir@logreglan.is

Þjónustuaðili

Ríkis­lög­reglu­stjóri

Upplýsingar um starf

Starf

Aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá embætti ríkislögreglustjóra

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

14.10.2026

Umsóknarfrestur

28.10.2026