
Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Hjúkrunarnemar - Spennandi hlutastörf með námi á gjörgæslu Fossvogi
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
20-100%
Starf skráð
23.10.2026
Umsóknarfrestur
06.11.2026
Hjúkrunarnemar - Spennandi hlutastörf með námi á gjörgæslu Fossvogi
Við óskum eftir að ráða á gjörgæslu í Fossvogi 4. árs hjúkrunarnema sem hafa áhuga á gjörgæsluhjúkrun. Nemar fá einstakt tækifæri til að kynnast gjörgæsluhjúkrun og efla klíníska færni sína við lærdómsríkar aðstæður. Um er að ræða tímabundið hlutastarf með námi. Vinnuskipulag er vaktavinna og er starfshlutfall og vinnufyrirkomulag samkomulag. Tekið er tillit til námsins við skipulag vakta. Um er að ræða tímabundna ráðningu til og með 31.08.2027 og er ráðið í starfið sem fyrst.
Gjörgæsla heyrir undir skurðlækninga-, skurðstofu- og gjörgæsluþjónustu og starfa rúmlega 70 starfsmenn, hjúkrunarfræðingar, sjúkraliðar og annað starfsfólk við fjölbreytt og krefjandi verkefni, í nánu samstarfi við fagfólk í öðrum sérgreinum og á öðrum deildum spítalans. Deildin þjónar einstaklingum, bæði börnum og fullorðnum, sem þarfnast gjörgæslumeðferðar af margvíslegum ástæðum. Þar er veitt almenn gjörgæslumeðferð ásamt mjög sérhæfðri meðferð sjúklinga með fjöláverka eftir alvarleg slys, höfuðáverka, brunasjúklinga og einstaklinga með alvarlega æðasjúkdóma.
Áhugasömum er bent á að hafa samband við Þóru deildarstjóra á gjörgæslu í Fossvogi.
Helstu verkefni og ábyrgð
Hlutverk og ábyrgð er í samræmi við starfslýsingar hjúkrunarnema eftir lengd náms
Þátttaka í þverfagleri teymisvinnu innan deildar og í samvinnu við aðrar deildir
Þátttaka í þróun og umbótum
Hæfniskröfur
Hjúkrunarnemi á 4. ári
Jákvætt viðhorf, frumkvæði og samskiptahæfni
Faglegur metnaður og áhugi á að öðlast færni í hjúkrun gjörgæslusjúklinga
Hæfni og geta til að vinna í teymi
Íslenskukunnátta áskilin
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert.
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Hjúkrunarnemi, hjúkrun, teymisvinna
Tungumálahæfni: Íslenska 4/5
Staðsetning: Fossvogur, 108 Reykjavík
Starfshlutfall er 20-100%
Umsóknarfrestur er til og með 06.11.2026
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Hjúkrunarnemar - Spennandi hlutastörf með námi á gjörgæslu Fossvogi
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
20-100%
Starf skráð
23.10.2026
Umsóknarfrestur
06.11.2026