Þjónustuaðili
Lögreglustjórinn á Vesturlandi
Upplýsingar um starf
Starf
Staða aðstoðaryfirlögregluþjóns við embætti Lögreglustjórans á Vesturlandi.
Staðsetning
Vesturland
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
28.08.2026
Umsóknarfrestur
11.09.2026
Staða aðstoðaryfirlögregluþjóns við embætti Lögreglustjórans á Vesturlandi.
Við embætti Lögreglustjórans á Vesturlandi er laus til umsóknar staða aðstoðaryfirlögregluþjóns á rekstrarsviði. Gert er ráð fyrir að lögreglustjóri setji í embættið frá og með 1. október n.k., til reynslu í 12 mánuði, með skipun til fimm ára í huga að reynslutíma loknum.
Nánari upplýsingar um vinnustaðinn
Lögreglan á Vesturlandi er eitt af níu lögregluumdæmum landsins, sem ákveðin eru í lögreglulögum nr. 90/1996 og reglugerð um umdæmi lögreglustjóra nr. 1150/2014. Hjá embættinu er m.a. lögð áhersla á gagnsæi, frumkvæði starfsfólks, umhverfismál, orkuskipti, framúrskarandi þjálfun og símenntun, opin og jákvæð samskipti, vönduð vinnubrögð, framúrskarandi þjónustu og vilja til samvinnu og samstarfs og starfa þar nú liðlega 65 starfsmenn.
Í umdæmi Lögreglustjórans á Vesturlandi eru 8 sveitarfélög. Aðalstöð lögreglustjóra er í Borgarnesi, en lögreglustöðvar eru einnig á Akranesi, í Ólafsvík, í Stykkishólmi og í Búðardal.
Samkvæmt skipuriti frá því í janúar á síðasta ári, starfar embætti lögreglustjórans á Vesturlandi á þremur sviðum, rekstrar-, löggæslu- og ákærusviði. Meginmarkmið rekstrarsviðs embættisins er að tryggja góða yfirsýn rekstrarþátta og skilvirkni í rekstri, tryggja aðgengilega og uppfærða vinnuferla, auka vægi stafrænna lausna og stuðla að samstilltum og hæfum mannauði. Aðstoðaryfirlögregluþjónn rekstrarsviðs situr í yfirstjórn embættisins og tekur virkan þátt í stefnumótum embættisins og eftirfylgni með henni. Undir rekstrarsvið heyra skrifstofa, myndavéladeild og kerfisstjórn.
Helstu verkefni og ábyrgð
Samkvæmt reglugerð um starfsstig innan lögreglunnar nr. 1051/2006 eru verksvið og ábyrgð aðstoðaryfirlögregluþjóns skilgreind í 6. gr., auk neðan greindra atriða:
Innleiðing heildarstefnu, þ.m.t. eftirfylgni með aðgerðum.
Vinnur náið með yfirlögregluþjóni og aðstoðaryfirlögregluþjóni löggæslusviðs að teymisstarfi embættisins.
Almannavarnir ásamt yfirlögregluþjóni og aðstoðaryfirlögregluþjóni löggæslusviðs.
Umsjón og skipulagning starfsmannasamtala og frammistöðusamtala.
Ber ábyrgð á innri vef embættisins og tryggir að vinnuferlar og verklagsreglur séu uppfærðar og aðgengilegar.
Gerð áætlana, þ.m.t. rekstrar-, launa- og búnaðaráætlana og eftirfylgni með þeim.
Yfirumsjón með viðverukerfi (MTP) og launavinnslu embættisins auk starfsmannamála.
Mótar mannauðsstefnu embættisins og framfylgir henni.
Yfirumsjón með skipulagningu/framkvæmd á þjálfun og fræðslu lögreglumanna við embættið.
Önnur verkefni sem honum eru falin.
Hæfniskröfur
Umsækjendur skulu hafa lokið prófi frá Lögregluskóla ríkisins eða diplómaprófi í lögreglufræðum sem jafngildir a.m.k. 120 stöðluðum námseiningum, þ.m.t. starfsnámi á vegum lögreglunnar og hafa a.m.k. fimm ára starfsreynslu sem lögreglumaður eftir útskrift.
Stjórnunarreynsla innan lögreglu er nauðsynleg sem og reynsla af verkefnastjórnun og að hafa innan lögreglu stýrt stærri verkefnum bæði til skemmri og lengri tíma.
Yfirgripsmikil þekking á almennri löggæslu sem og þekking á lögreglurannsóknum er kostur.
Þekking og reynsla af þjálfun lögreglumanna og skipulagningu slíkrar þjálfunar er nauðsynleg.
Yfirgripsmikil þekking á kjara- og stofnanasamningsmálefnum lögreglumanna er nauðsynleg.
Þekking og reynsla af vinnu innan MTP er skilyrði.
Umsækjandi þarf að hafa þekkingu á daglegum rekstri innan og/eða utan lögreglu, þ.m.t. launa- og bókhaldsmálefnum og hafa ríka rekstrarvitund.
Æskilegt er að umsækjandi búi yfir þekkingu á sviði almannavarna og hæfni til skipulagningar aðgerða sem tengjast almannavá, hafi unnið innan AST og hafi reynslu og þekkingu af skipulagningu og framkvæmd löggæslu á stærri viðburðum.
Kostur er að hafa skipulagt og eða stjórnað almennri löggæslu innan valfrjáls vaktakerfis.
Leitað er eftir ríkri hæfni í mannlegum samskiptum, lausnamiðaðri hugsun, leiðtogahæfileikum, miklu sjálfstæði og sveigjanleika í starfi og miklu álagsþoli.
Umsækjandi þarf að búa yfir mikilli hæfni og þekkingu á landskerfum lögreglu, kerfum FJS, auk þekkingar á kerfisstjórn og hafa mjög góða íslenskukunnáttu.
Umsækjandi þarf að hafa framúrskarandi almenna tölvukunnáttu og jafnframt skýran vilja og frumkvæði til að starfa í auknum mæli í stafrænu/pappírslausu starfsumhverfi.
Umsækjandi þarf að geta stuðlað að eftirfarandi þáttum meðal starfsmanna embættisins; aukinni hæfni, jákvæðri hegðun og framþróun. Þá þarf hann að eiga auðvelt með að gefa fyrirmæli á jákvæðan og uppbyggilegan hátt og jafnframt hafa í störfum sínum ekki forðast að bregðast við vandamálum eða óæskilegri hegðun.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Landssamband lögreglumanna hafa gert.
Jafnframt er gætt ákvæða gildandi stofnanasamnings.
Umsækjendur skulu senda inn ítarlega ferilskrá auk kynningarbréfs þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda til að gegna starfinu. Umsækjendum kann að vera gert að leysa verkefni í ráðningarferlinu, sem kæmu auk annarra þátta, heildstætt inn í mat á hæfni þeirra til að gegna starfinu.
Til að staðreyna hvort umsækjandi uppfylli skilyrði e-liðar 2. mgr. 28. gr. lögreglulaga nr. 90/1996 er lögreglustjóra heimilt skv. 28. gr. a. sömu laga að afla upplýsinga um umsækjendur úr sakaskrá og málaskrám lögreglu.
Umsóknarfrestur er til og með 11. september n.k. og skal umsóknum skilað til lögreglustjórans á Vesturlandi með rafrænum hætti (sjá hnapp sækja um starf hér að neðan).
Umsóknir sem berast eftir að umsóknarfresti lýkur verða ekki teknar til greina. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun liggur fyrir. Umsóknir munu gilda í 6 mánuði.
Í ljósi ríkjandi kynjahlutfalls innan lögreglu og jafnréttisáætlunar lögreglu eru konur hvattar sérstaklega til að sækja um.
Lögreglustjórinn á Vesturlandi, 28. ágúst 2026
Gunnar Ö. Jónsson
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 11.09.2026
Nánari upplýsingar veitir
Jónas Hallgrímur Ottósson
Aðstoðaryfirlögregluþjónn
Tölvupóstur: jonas.ottos@logreglan.is
Sími: 4440300
Þjónustuaðili
Lögreglustjórinn á Vesturlandi
Upplýsingar um starf
Starf
Staða aðstoðaryfirlögregluþjóns við embætti Lögreglustjórans á Vesturlandi.
Staðsetning
Vesturland
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
28.08.2026
Umsóknarfrestur
11.09.2026