
Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Hjúkrunarfræðingur - Blóðbankinn Kringlan
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
67-100%
Starf skráð
25.08.2026
Umsóknarfrestur
11.09.2026
Hjúkrunarfræðingur - Blóðbankinn Kringlan
Hjúkrunarfræðingur óskast til starfa hjá Blóðbankanum, í starfsstöð í Kringlunni. Við bjóðum jafn velkominn í okkar góða hóp nýútskrifaðan hjúkrunarfræðing sem og hjúkrunarfræðing með reynslu. Starfið er bæði fjölbreytt og krefjandi og mikil tækifæri til faglegrar þróunar. Rík áhersla er lögð á góða og einstaklingsmiðaða aðlögun undir handleiðslu reyndra hjúkrunarfræðinga.
Um er að ræða dagvinnu með breytilegan vinnutíma. Einnig eru bakvaktir, um helgar og á rauðum dögum, sem skiptast niður á starfsmannahópinn. Starfshlutfall getur verið 67-100% og er starfið laust nú þegar eða samkvæmt nánara samkomulagi.
Blóðbankinn sinnir m.a. söfnun blóðs, blóðhlutavinnslu, geymslu blóðhluta, blóðflokkunum, afgreiðslu blóðhluta og gæðaeftirliti. Í Blóðbankanum starfa um 55 einstaklingar, hjúkrunarfræðingar, líffræðingar, lífeindafræðingar, læknar og skrifstofufólk og er Blóðbankinn eini sinnar tegundar á landinu. Þar er unnið samkvæmt vottuðu gæðakerfi og er markmið alls starfsfólks að viðhalda gæðakerfinu og vinna í samræmi við hlutverk og stefnu Blóðbankans.
Vinnuvika starfsfólks í fullri dagvinnu er 36 stundir. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.
Landspítali styður nýútskrifaða hjúkrunarfræðinga í starfi með markvissri handleiðslu og fræðslu, samhliða starfi í formi starfsþróunarárs Landspítala.
Helstu verkefni og ábyrgð
Móttaka blóðgjafa, mat á hæfi þeirra og blóðtaka
Sértæk blóðsöfnun með blóðfrumuskiljuvélum
Blóðsöfnunarferðir á höfuðborgarsvæðinu og út á land
Skráning upplýsinga og vinna í gæðakerfi
Öflun blóðgjafa og markaðsstarf
Hæfniskröfur
Íslenskt hjúkrunarleyfi
Góð íslenskukunnátta nauðsynleg og góður skilningur á ensku eða pólsku
Góð tölvukunnátta
Fagmennska, nákvæmni og vilji til að tileinka sér nýjungar
Gott viðmót, jákvæðni og lipurð í mannlegum samskiptum
Sterkur vilji til að standa sig í skemmtilegu og krefjandi starfi
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, hjúkrunarfræðingur, teymisvinna,
Tungumálahæfni: íslenska 4/5, enska 3/5, pólska 3/5
Staðsetning: Kringlan 4-12, 103 Reykjavík
Starfshlutfall er 67-100%
Umsóknarfrestur er til og með 11.09.2026
Nánari upplýsingar veitir
Arnar Gunnsteinsson
Tölvupóstur: arnargu@landspitali.is

Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Hjúkrunarfræðingur - Blóðbankinn Kringlan
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
67-100%
Starf skráð
25.08.2026
Umsóknarfrestur
11.09.2026