Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Landbún­að­ar­há­skóli Íslands

Upplýsingar um starf

Starf

Sérfræðingur á sviði vistheimtar við Landbúnaðarháskóla Íslands

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

01.10.2026

Umsóknarfrestur

23.10.2026

Sérfræðingur á sviði vistheimtar við Landbúnaðarháskóla Íslands

Landbúnaðarháskóli Íslands auglýsir laust starf sérfræðings á sviði vistheimtar og sjálfbærrar landnýtingar þar sem reynir á frumkvæði og lausnamiðað hugarfar. Um er að ræða fullt starf og stærsti hluti starfsins er fyrir Landgræðsluskólann (GRÓLRT) .

Landgræðsluskólinn er hýstur hjá Landbúnaðarháskóla Íslands og er hluti af GRÓ Þekkingarmiðstöð þróunarsamvinnu, sem starfar undir hatti UNESCO. Markmið skólans er að þjálfa sérfræðinga sem starfa hjá stofnunum á sviði vistheimtar og sjálfbærrar landnýtingar í samstarfslöndum skólans í Afríku og Mið-Asíu.

Landgræðsluskólinn er hluti af alþjóðlegri þróunarsamvinnu Íslands og er kostaður af opinberum fjármunum utanríkisráðuneytisins til þróunarsamvinnu. Stærsta verkefni skólans ár hvert er 6 mánaða þjálfun á Íslandi fyrir starfandi fagfólk í samstarfslöndunum þar sem mikil áhersla er lögð á hagnýtingu þekkingar.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Þátttaka í faglegri þróun náms og uppbyggingu Landgræðsluskólans

  • Kennsla og þátttaka í daglegu skipulagi námsins

  • Umsjón með rannsóknarverkefnum nemenda í samvinnu við leiðbeinendur

  • Þátttaka í verkefnum er lúta að námskeiðum og vinnustofum í samstarfslöndum

  • Gæðaeftirlit og eftirfylgni er varðar niðurstöður gæðaúttekta

  • Kennsla innan deildar og tilfallandi verkefni á sviði endurheimtar við Landbúnaðarháskóla Íslands

Hæfniskröfur

  • Doktorsgráða í endurheimt vistkerfa, vistfræði eða skyldum greinum æskileg

  • Reynsla af rannsóknum og kennslu í endurheimt vistkerfa, vistfræði eða skyldum greinum

  • Hæfni til að vinna sjálfstætt og sem hluti af teymi

  • Jákvæðni, lausnamiðuð nálgun og framúrskarandi samskiptahæfni

  • Góð enskukunnátta í töluðu og rituðu máli

  • Íslenskukunnátta er æskileg

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Hlutverk Landbúnaðarháskóla Íslands er að skapa og miðla þekkingu á sviði sjálfbærrar þróunar samfélags, nýtingar auðlinda, umhverfis- og loftslagsmála, skipulags, hönnunar og matvælaframleiðslu.

Við ráðningu í störf hjá Landbúnaðarháskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun stofnunarinnar.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 23.10.2026

Nánari upplýsingar veitir

Sjöfn Vilhelmsdóttir

Forstöðumaður

Tölvupóstur: sjofn@lbhi.is

Sími: 433 5000

Guðmunda Smáradóttir

Mannauðs- og gæðastjóri

Tölvupóstur: gudmunda@lbhi.is

Sími: 433 5000

Þjónustuaðili

Landbún­að­ar­há­skóli Íslands

Upplýsingar um starf

Starf

Sérfræðingur á sviði vistheimtar við Landbúnaðarháskóla Íslands

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

01.10.2026

Umsóknarfrestur

23.10.2026