
Þjónustuaðili
Fiskistofa
Upplýsingar um starf
Starf
Sérfræðingur i tækniþróun eftirlits
Staðsetning
Óstaðbundið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
25.09.2026
Umsóknarfrestur
06.10.2026
Sérfræðingur i tækniþróun eftirlits
Fiskistofa leitar að öflugum og drífandi einstaklingi til að leiða þróunar- og tilraunaverkefni á sviði rafræns eftirlits.
Meginverkefnið felst í þróun, uppsetningu og prófun myndavéla- og greiningarbúnaðar um borð í vinnsluskipi, í samstarfi við útgerð og aðra samstarfsaðila.
Verkefnið er liður í frekari þróun rafræns eftirlits og nýrrar tækni hjá Fiskistofu.
Starfið er tímabundið til tveggja ára og tengist verkefni sem hlotið hefur styrk úr verkefnasjóði sjávarútvegsins.
Helstu verkefni og ábyrgð
Leiða og halda utan um tilraunaverkefni Fiskistofu á sviði rafræns eftirlits og myndgreiningar um borð í vinnsluskipi.
Samhæfa og halda utan um samstarf þeirra aðila sem að verkefninu koma.
Fylgja eftir uppsetningu, þróun og prófun tæknilausna sem nýta m.a. gervigreind, myndgreiningu og aðra stafræna tækni.
Koma að þróun verklags og reglna og innleiðingu nýrra tæknilausna í eftirliti.
Halda utan um gagnasöfnun, framgang verkefnis, skýrslugerð og kynningu niðurstaðna.
Koma að öðrum þróunarverkefnum og samstarfs- og styrkjamöguleikum á sviði rafræns eftirlits
Hæfniskröfur
Menntun og/eða haldgóð reynsla og þekking sem nýtist í starfi.
Reynsla af verkefnastjórnun eða innleiðingu nýrra lausna er kostur.
Góð tæknileg hæfni og geta til að tileinka sér og vinna með nýja tækni.
Þekking eða reynsla af gervigreind, myndgreiningu, gagnagreiningu eða öðrum stafrænum lausnum er kostur.
Þekking á sjávarútvegi er kostur.
Frumkvæði, sjálfstæði og góð skipulags-, samskipta- og samstarfshæfni.
Góð greiningarhæfni og geta til að halda yfirsýn yfir flókin verkefni.
Mjög góð færni í íslensku og ensku, bæði í ræðu og riti.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Sótt er um starfið hér: https://jobs.50skills.com/mognum/is/44966
Með umsókn þarf að fylgja með ítarleg ferilsskrá auk kynningarbréfs þar sem gerð er grein yrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjanda.
Nánari upplýsingar veita Sigríður Ólafsdóttir; sigga@mognum.is og Telma Eiðsdóttir; telma@mognum.is
Fiskistofa er stjórnsýslu- og eftirlitsstofnun sem heyrir undir atvinnuvegaráðuneytið og annast framkvæmd laga um fiskveiðistjórnun og laga um lax- og silungsveiði.
Stofnunin sér um úrvinnslu mála og útgáfu ákvarðana, auk þess að hafa eftirlit með fiskveiðum og vinnslu sjávarafla. Fiskistofa leggur áherslu á framsækna og skilvirka stjórnsýslu og er leiðandi í fiskveiðistjórnun á heimsvísu.
Um næstu áramót sameinast Fiskistofa, Matvælastofnun (MAST) og Verðlagsstofu skiptaverðs (VSS) í nýja stofnun, Stofnun atvinnuveganna (STAV).
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 06.10.2026
Nánari upplýsingar veitir
Viðar Ólason
Tölvupóstur: vidar@fiskistofa.is

Þjónustuaðili
Fiskistofa
Upplýsingar um starf
Starf
Sérfræðingur i tækniþróun eftirlits
Staðsetning
Óstaðbundið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
25.09.2026
Umsóknarfrestur
06.10.2026