Þjónustuaðili
Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
Upplýsingar um starf
Starf
Embætti forstjóra Miðstöðvar um öryggisráðstafanir
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starf skráð
13.10.2026
Umsóknarfrestur
01.11.2026
Embætti forstjóra Miðstöðvar um öryggisráðstafanir
Embætti forstjóra Miðstöðvar um öryggisráðstafanir er laust til umsóknar
Félags- og húsnæðismálaráðuneytið auglýsir laust til umsóknar embætti forstjóra Miðstöðvar um öryggisráðstafanir, skv. lögum nr. 76/2026 um framkvæmd öryggisráðstafana samkvæmt dómsúrlausn.
Helstu verkefni Miðstöðvar um öryggisráðstafanir
Miðstöð um öryggisráðstafanir tekur formlega til starfa 1. apríl 2027 þegar lög um framkvæmd öryggisráðstafana samkvæmt dómsúrlausn taka jafnframt gildi. Verkefni miðstöðvarinnar verða eftirfarandi:
Miðstöð um öryggisráðstafanir sér um framkvæmd öryggisráðstafana og annast önnur verkefni í samræmi við ákvæði ofangreindra laga og stjórnvaldsfyrirmæla sem sett eru samkvæmt þeim.
Miðstöðin tekur við dómum og úrskurðum um öryggisráðstafanir til framkvæmdar og skráningar frá ríkissaksóknara.
Miðstöðin hefur eftirlit og umsjón með öryggisgæslustöðum sem starfa á hennar vegum, sem og umsjón með einstaklingum sem gert er að sæta vægari öryggisráðstöfunum. Hún fer jafnframt með eftirlit með öryggisgæslustöðum sem reknir eru á grundvelli samnings við sveitarfélög og einkaaðila.
Miðstöðin veitir ráðgjöf og faglegan stuðning öllum þeim aðilum sem veita skjólstæðingum þjónustu samhliða öryggisráðstöfunum. Miðstöðin veitir viðeigandi hagaðilum jafnframt fræðslu um málefni stofnunarinnar og skjólstæðinga hennar.
Helstu verkefni og ábyrgð
Ákvæði I til bráðabirgða í ofangreindum lögum hefur þegar öðlast gildi og skal ráðherra samkvæmt . því hefja undirbúning að stofnun Miðstöðvar um öryggisráðstafanir, meðal annars með því að skipa forstjóra hennar. Miðað er við að skipað verði í embættið eins fljótt og auðið er og eigi síðar en 1. febrúar 2027.
Forstjóri undirbýr starfsemi stofnunarinnar, meðal annars með því að ganga frá ráðningu starfsfólks og gera ráðstafanir til þess að gildandi samningar um öryggisráðstafanir færist yfir til miðstöðvarinnar við gildistöku laganna í apríl nk.
Forstjóri vinnur með hlutaðeigandi ráðuneytum að húsnæðismálum nýrrar stofnunar.
Forstjóri kemur að öðrum verkefnum á undirbúnings- og innleiðingartímanum, svo sem gerð stjórnvaldsfyrirmæla og samhæfingu gagnvart þjónustukerfum.
Forstjóri veitir miðstöðinni forstöðu og ber ábyrgð á daglegum rekstri hennar. Hann sér til þess að starfsemi miðstöðvarinnar sé í samræmi við lög, stjórnvaldsfyrirmæli, reglugerðir og erindisbréf sem ráðherra setur.
Hæfniskröfur
Leitað er að öflugum og framsýnum leiðtoga sem hefur sterka hæfni til að leiða fjölbreyttan hóp starfsfólks í gegnum uppbyggingu og þróun nýrrar stofnunar, skapa traust og samstöðu og stuðla að faglegri og skilvirkri framkvæmd öryggisráðstafana.
Leitað er að einstaklingi sem býr yfir:
Háskólaprófi sem nýtist í starfi.
Þekkingu og reynslu sem nýtist á starfssviði miðstöðvarinnar
Þekkingu og reynslu á sviði opinberrar stjórnsýslu.
Farsælli reynslu af stjórnun, rekstri og stefnumörkun.
Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum ásamt leiðtogahæfileikum.
Reynslu og hæfni til að koma fram opinberlega og miðla upplýsingum.
Hæfni til tjáningar í ræðu og riti á íslensku og ensku. Kunnátta í Norðurlandamáli er kostur.
Frekari upplýsingar um starfið
Frekari upplýsingar um starfið
Ráðherra skipar forstjóra Miðstöðvar um öryggisráðstafanir til fimm ára í senn. Engan má skipa oftar en tvisvar sinnum í embættið.
Starfshlutfall er 100%.
Um laun forstjóra fer eftir 39. gr. a í lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins.
Áður en forstjóri Miðstöðvar um öryggisráðstafanir er skipaður skal hann, að fengnu samþykki hans, undirgangast bakgrunnsskoðun, skv. 9. gr. laga nr. 76/2026 um framkvæmd öryggisráðstafana samkvæmt dómsúrlausn.
Umsóknarfrestur er til og með 1. nóvember nk. Umsókn skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf á íslensku þar sem fjallað er ítarlega um hvernig umsækjandi uppfyllir þær hæfniskröfur sem settar eru fram í auglýsingunni og hvað viðkomandi telur sig geta lagt af mörkum í embætti forstjóra.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um skipun liggur fyrir.
Hæfnisnefnd skipuð af félags-og húsnæðismálaráðherra mun meta hæfni umsækjenda um embættið og skila greinargerð til ráðherra.
Umsóknarfrestur er til og með 01.11.2026
Nánari upplýsingar veitir
Geirlaug Jóhannsdóttir
Tölvupóstur: geirlaug@hagvangur.is
Sverrir Briem
Tölvupóstur: sverrir@hagvangur.is
Þjónustuaðili
Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
Upplýsingar um starf
Starf
Embætti forstjóra Miðstöðvar um öryggisráðstafanir
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starf skráð
13.10.2026
Umsóknarfrestur
01.11.2026