
Þjónustuaðili
Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins
Upplýsingar um starf
Starf
Framkvæmdastjóri reksturs og þróunar – ÁTVR
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
03.11.2026
Umsóknarfrestur
16.11.2026
Framkvæmdastjóri reksturs og þróunar – ÁTVR
ÁTVR leitar að öflugum leiðtoga í starf framkvæmdastjóra reksturs og þróunar. Starfið er lykilstaða í framkvæmdastjórn ÁTVR og felur í sér víðtæka ábyrgð á fjármálum og rekstri fyrirtækisins.
Við leitum að reyndum stjórnanda með sterka leiðtogahæfni, góða fjármálalega og rekstrarlega yfirsýn og hæfni til að leiða þróun og umbætur. Undir starfssviðið heyra meðal annars fjármál, upplýsingatækni og stafræn þróun, samningar, fasteignir og öryggismál.
Framkvæmdastjóri þarf að vera drífandi og umbótasinnaður, hafa ríka greiningarhæfni og geta nýtt gögn og upplýsingar markvisst við ákvarðanatöku. Mikilvægt er að viðkomandi hafi heildarsýn á rekstur og komi auga á tækifæri til aukinnar skilvirkni. Jafnframt skiptir miklu að viðkomandi byggi upp traust og samstöðu og stuðli að hvetjandi og árangursríku starfsumhverfi.
Helstu verkefni og ábyrgð
Ábyrgð á fjármálastjórn, reikningsskilum, uppgjörum, ársreikningi og árs- og samfélagsskýrslu
Gerð rekstrar- og fjárfestingaáætlana, eftirfylgni og frávikagreining
Greining rekstrarupplýsinga, kostnaðareftirlit og markviss upplýsingagjöf
Ábyrgð á áhættustýringu og innra eftirliti
Ábyrgð á rekstri, viðhaldi og þróun upplýsingatæknikerfa og tæknilegra innviða
Mótun og innleiðing áætlana um stafræna þróun og nýtingu tæknilausna til að bæta þjónustu og auka skilvirkni
Ábyrgð á rekstrar- og upplýsingaöryggi og viðbúnaði vegna rekstrartruflana
Ábyrgð á framkvæmdum, viðhaldi og endurnýjun fasteigna og annarra fastafjármuna
Virk þátttaka í framkvæmdastjórn, stefnumótun og innleiðingu breytinga
Hæfniskröfur
Háskólapróf og framhaldsmenntun sem nýtist í starfi
Farsæl stjórnunarreynsla
Haldgóð reynsla af fjármálastjórnun og reikningshaldi
Reynsla af áætlanagerð og greiningum
Reynsla af smásölu er kostur
Reynsla og þekking á opinberu starfsumhverfi er kostur
Mjög góð greiningarhæfni og lausnamiðuð hugsun
Framúrskarandi leiðtoga- og samskiptafærni
Skipulögð og öguð vinnubrögð
Árangursdrifni, frumkvæði og metnaður
Frekari upplýsingar um starfið
ÁTVR rekur 48 Vínbúðir um allt land. Stefna fyrirtækisins er að vera í hópi bestu þjónustufyrirtækja landsins og fyrirmynd á sviði samfélagsábyrgðar.
Við viljum að vinnustaðurinn sé lifandi og skemmtilegur og vinnum markvisst að því að auka ánægju starfsfólks.
Við leggjum áherslu á að starfsfólk fái tækifæri til að þroskast og læra nýja hluti. Þannig eflum við þekkingu og kraft fyrirtækisins.
Um fullt starf er að ræða. Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Umsækjendur skulu senda inn ferilskrá ásamt kynningarbréfi á íslensku. Þar skal gera grein fyrir þeirri þekkingu, reynslu og hæfni umsækjanda sem nýtist til að sinna starfinu í samræmi við hæfniskröfurnar í auglýsingunni. Við úrvinnslu umsókna verður sérstaklega horft til gæða umsóknargagna.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 16.11.2026
Nánari upplýsingar veitir
Sverrir Briem
Tölvupóstur: sverrir@hagvangur.is
Stefanía Hildur Ásmundsdóttir
Tölvupóstur: stefania@hagvangur.is

Þjónustuaðili
Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins
Upplýsingar um starf
Starf
Framkvæmdastjóri reksturs og þróunar – ÁTVR
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
03.11.2026
Umsóknarfrestur
16.11.2026