Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Miðstöð íslenskra bókmennta

Upplýsingar um starf

Starf

Verkefnastjóri

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

02.09.2026

Umsóknarfrestur

17.09.2026

Verkefnastjóri

Miðstöð íslenskra bókmennta auglýsir eftir öflugum verkefnastjóra í fullt starf tímabundið í eitt ár.


Helstu verkefni og ábyrgð

  • Umsjón með styrkveitingum innanlands og utan.

  • Kynningarmál ýmiss konar.

  • Samskipti við innlenda og erlenda samstarfsaðila.

  • Skipulag og vinna við margvísleg verkefni og viðburði á vegum Miðstöðvarinnar.

  • Almenn skrifstofustörf.

Hæfniskröfur

  • Háskólamenntun og starfsreynsla sem nýtist í starfi.

  • Innsýn, þekking og áhugi á bókmenntum.

  • Mjög góð færni og þekking á ritvinnslu-, reikni-, myndvinnsluforritum.

  • Skipulagshæfileikar, nákvæmni, frumkvæði og metnaður.

  • Þekking, reynsla og hæfni í textaskrifum og miðlun upplýsinga.

  • Mjög góð íslensku- og enskukunnátta og færni í einu Norðurlandamáli kostur.

  • Reynsla af erlendu samstarfi er æskileg.

  • Lipurð í mannlegum samskiptum.

Frekari upplýsingar um starfið

Starfshlutfall er 100% og verkefnastjóri heyrir undir framkvæmdastjóra. Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi fjármálaráðherra og viðkomandi stéttarfélags.
Gert er ráð fyrir að verkefnastjóri taki til starfa í desember á þessu ári.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 17.09.2026

Nánari upplýsingar veitir

Hrefna Haraldsdóttir

framkvæmdastjóri

Tölvupóstur: hrefna@islit.is

Þjónustuaðili

Miðstöð íslenskra bókmennta

Upplýsingar um starf

Starf

Verkefnastjóri

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

02.09.2026

Umsóknarfrestur

17.09.2026