Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Lands­réttur

Upplýsingar um starf

Starf

Dómvörður

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

01.09.2026

Umsóknarfrestur

14.09.2026

Dómvörður

Landsréttur auglýsir lausa til umsóknarstöðu dómvarðar í fullt starf.

Starfið felur í sér fjölþætt þjónustu- og öryggishlutverk við dómstólinn.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Umsjón með dómsölum, þar á meðal tæknileg úrvinnsla er varðar hugbúnað og vélbúnað

  • Almenn húsvarsla, þar með talið minni háttar viðhald

  • Öryggisgæsla og þjónusta við þá sem erindi eiga í dómhúsið

  • Umsjón og eftirlit með öryggiskerfum og öðrum öryggismálum hússins

  • Innkaup á rekstrarvörum

  • Önnur tilfallandi verkefni

Hæfniskröfur

  • Iðnmenntun er kostur sem og önnur menntun sem nýtist í starfi

  • Reynsla af löggæslu- eða öryggisstörfum er kostur

  • Líkamlegt og andlegt atgervi til að mæta óvæntum uppákomum í starfseminni

  • Hæfni í mannlegum samskiptum, rík þjónustulund og sveigjanleiki

  • Góð íslenskukunnátta

  • Almenn tölvufærni

Frekari upplýsingar um starfið

Starfskjör eru í samræmi við kjarasamning ríkisins og Sameykis. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Með umsókn skal fylgja ítarleg starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi þar sem gerð er grein fyrir ástæðum umsóknar og hvernig viðkomandi uppfyllir hæfniskröfur. Vakin er athygli á því að umsækjandi kann að verða beðinn um að framvísa sakavottorði í ráðningarferlinu.

Áskilið er að umsóknir og fylgigögn berist rafrænt á netfangið landsrettur@landsrettur.is. Umsóknir gilda í allt að sex mánuði. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu í starfið liggur fyrir.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 14.09.2026

Nánari upplýsingar veitir

Erna Sigríður Sigurðardóttir

skrifstofustjóri Landsréttar

Tölvupóstur: erna.s.sigurdardottir@landsrettur.is

Sími: 432-5300

Þjónustuaðili

Lands­réttur

Upplýsingar um starf

Starf

Dómvörður

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

01.09.2026

Umsóknarfrestur

14.09.2026