
Þjónustuaðili
Lyfjastofnun
Upplýsingar um starf
Starf
Verkefnastjóri skráninga
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
25.09.2026
Umsóknarfrestur
12.10.2026
Verkefnastjóri skráninga
Lyfjastofnun auglýsir laust starf verkefnastjóra skráninga í ferlastjórnunarteymi. Teymið heyrir undir deildina gæðamat og er á sviði mats og skráningar lyfja. Leitað er að jákvæðum, drífandi og nákvæmum einstaklingi til að sinna verkefnastjórnun og umsjón með lyfjaskráningum. Um 100% starf er að ræða og kostur ef viðkomandi getur hafið störf sem fyrst.
Helstu verkefni og ábyrgð
Verkefnastjórnun og umsjón með markaðsleyfisumsóknum frá upphafi til loka
skráningaferils
Umsjón og verkefnastýring annarra matsverkefna
Verkefnastýring vísindaráðgjafar sem sinnt er af Lyfjastofnun
Samskipti við erlendar lyfjastofnanir og markaðsleyfishafa
Miðlun og upplýsingagjöf er varðar lyfjaskráningar
Hæfniskröfur
Grunn- og meistaragráða á heilbrigðis- eða raunvísindasviði
Reynsla og/eða nám í verkefnastjórnun er kostur
Þekking og/eða reynsla á sviði lyfjaskráninga er kostur
Þekking á lyfjaskráningakerfum er kostur
Þekking á íslenskri og evrópskri lyfjalöggjöf er æskileg
Mjög góð skipulagshæfni, jákvæðni og sveigjanleiki í starfi
Mjög góð teymisvitund, samstarfshæfni og lipurð í mannlegum samskiptum
Nákvæmni, skilvirkni og sjálfstæði í vinnubrögðum
Mjög góð tölvufærni
Gott vald á íslensku og ensku í töluðu og rituðu máli
Vilji til að tileinka sér nýja þekkingu og færni
Frekari upplýsingar um starfið
Við hvetjum einstaklinga af öllum kynjum og á öllum aldri til að sækja um.
Hlutverk Lyfjastofnunar er að tryggja öryggi landsmanna með greiðu aðgengi að lyfjum og lækningatækjum, faglegri þjónustu og hlutlausri upplýsingagjöf byggðri á nýjustu þekkingu. Lyfjastofnun heyrir undir heilbrigðisráðuneytið og sér um að gefa út markaðsleyfi fyrir lyf á Íslandi í samvinnu við lyfjayfirvöld á Evrópska efnahagssvæðinu, hafa eftirlit með lyfjafyrirtækjum og heilbrigðisstofnunum á Íslandi, meta gæði og öryggi lyfja og tryggja faglega upplýsingagjöf um lyf til heilbrigðisstarfsfólks og neytenda. Hjá Lyfjastofnun vinna um 70 starfsmenn. Lyfjastofnun starfar eftir mannauðsstefnu sem miðar að því að hafa helgað starfsfólk, rétt fólk á réttum stað og að vera eftirsóknarverður vinnustaður. Gildi Lyfjastofnunar eru gæði – traust – þjónusta. Sjá nánari upplýsingar um Lyfjastofnun á vef stofnunarinnar www.lyfjastofnun.is.
Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja starfsferilskrá og ítarlegt kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi.
Lyfjastofnun hefur hlotið jafnlaunavottun og eru laun samkvæmt kjarasamningi fjármálaráðuneytis og hlutaðeigandi stéttarfélags. Öllum umsóknum verður svarað að ráðningu lokinni. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknarfrests.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 12.10.2026
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
Lyfjastofnun
Upplýsingar um starf
Starf
Verkefnastjóri skráninga
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
25.09.2026
Umsóknarfrestur
12.10.2026